Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1852
1852
1852

Ísfirðingar upp á dekk

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

ÍÍsfirðingar upp á dekkallt snýst þar um græðiskipstjórar á skólabekkmeð skruddu' um siglingafræði.

Grunninn leggur Ásgeir aðÍsafjarðarveldium Ásgeirsfeðga enginn kvaðað óklókindi dveldi.

Glúmur Gylfason · 1852

Heimildir og samhengi

1852 byrjar sjómannaskóli á Ísafirði og starfaði til 1856 með fjárstyrk frá skútuskipstjórum, kennari Torfi Halldórsson (1823-1906), sem ,,hélt sjómannakennslu áfram eftir það á Flateyri um alllangt skeið”. Jón Þ. Þór: Saga Ísafjarðar I, bls. 176;
Árni Gíslason: Gullkistan 2. útg. 1980 bls. 23.
Sjá frásögn og mynd af Torfa hér:
Vefurbb.is (opnast í nýjum flipa)

Jón Jóhannesson, Skagfirsk fræði X, bls. 33, (um Siglufjörð & nágr. ~1860): ,,þá mátti kalla að siglingakunnátta væri óþekkt. Formenn þekktu á áttavitann, sjókort varla til. Annars staðar á landinu var þó vaknaður áhugi og viðleitni til að auka þekkingu sjómanna á siglingafræði”.

Ásgeir Ásgeirsson (1817-1877), sjá 1847, var faðir Ásgeirs yngra (1856-1912), sem tók við af honum látnum og gerði Ásgeirsverslun á Ísafirði að stórveldi þar og víðar á Vestfjörðum með 16 skútur, fjölda vélbáta, 2 gufuskip og 500 manns í vinnu við veiðar, vinnslu og verslun. Lagði sporbraut og síma um athafnasvæðið og náði að leggja til allt að 40% útflutningsverðmæta landsins. (1847).
Mágur Ásgeirs yngra, Árni Jónsson, guðfræðingur að mennt, var lengi verslunarstjóri Ásgeirsverslunar, síðast í Neðstakaupstað og bjó í Faktorshúsinu. Svo mikið kvað að Árna, að manna í millum gekk verslun Ásgeirs Í Neðstakaupstað undir nafninu Árnabúð!
Tilvísanir: Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fj......til, bls. 32.
Einar Laxness: Íslands saga I, bls. 48 (Ásgeirsverslun).

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurboreaadventures.com (opnast í nýjum flipa)

Vefurisavia.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1852

  • Á Eyrarbakkaíhaldið
← 1852Á Eyrarbakkaíhaldið1853 →Havsteen fékk forseta uppi elt