Havsteen fékk forseta uppi elt
Lag Fallega Skjóni fótinn ber - Bj.Þ. 886
Havsteen fékk forseta uppi eltætlaði víst að hnoða' h'onumen doktor Pjetur Pétri hélt:,,piltar, takið þ'ið við h'onum!"
Heimildir og samhengi
Þorvaldur Thoroddsen, Ævisaga dr. Pjeturs Pjetursonar, bls. 142; Þjóðólfur V, 112:
,,Þann dag var þingveisla að vanda ...þegar leið á veizluna fékk am. Havstein eitt af sínum vanstillingarköstum og ætlaði að berja Jón Sigurðsson, öllum féllust hendur nema dr. Pjetri, sem nærri sat, hann greip um amtmann og hjelt honum, Pétur Havstein var kraptamaður og braust um fast, en gat þó ekki losnað; eptir nokkra stund sagði dr. Pjetur það sem síðar var haft að orðtæki: ,,Takið þið við honum, piltar, ég mæðist"”.
Á bls. 54 í ævisögunni er getið heimildarmanns sem segir dr. Pjetur hafa lyft 50 fjórðunga hellu á Staðastað. (250 kg).
Á bls. 228 hjá Aðalgeir Kristjánssyni í ,,Nú heilsa þér á Hafnarslóð", Norðurportsmálið, er am. Pétur heimildarmaður fyrir þeirri sögu, að þegar þeir nafnar í hópi íslenskra stúdenta hafi komið að borgarhliði Kaupmannahafnar, Nörreport, læstu seint að nóttu, hafi Pjetur Pjetursson tekið að hrista grindur þess svo hraustlega að vörðurinn sá sér þann kost vænstan að opna og urðu engin eftirmál. Betur dugði borgarhliðið á stéttaþinginu 1660, þegar kóngur og borgarar læstu aðalinn inni uns samþykkti konungseinveldi! Sjá Einar Laxness, Íslands saga, bls. 113.
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Eldur á Möðruvöllum, 504: ,,vildi Pétur ráðast á Jón fyrir að líkja embættismönnum þjóðarinnar við óæðri endann á sér”, og á bls. 508: ,,...virðist sem Jón (forseti) hafi gert það sér til ánægju að hringja amtmann niður úr ræðustóli á þinginu 1853", og á bls. 545: ,,er til saga af því, að Pétur amtmaður hafi ætlað að taka að sér sáttahlutverk milli hjóna ...og hafi leyst það svo af hendi, að hann barði eiginmanninn, en lét dátt að eiginkonunni (sögn Stefáns amtmanns Thorarensen)”.
Þessi atburður kanna a svara þeirri spurnigu sem Harald Gustafsson veltir upp á bls. 286 í Mellan kung och almoge: yfir hverjum Jón Sigurðsson hafi eiginlega verið að predika sína frjálslyndu þjóðernisstefu.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ukrainskir þingmenn slást sem oftar:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Slegist á ýmsum þjóðþingum:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Tyrkneska:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Taiwan:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Makedonia
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Uganda:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ítalía:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)