Á Eyrarbakkaíhaldið
Lag Veröld fláa - Stúd. 87
Á Eyrarbakkaíhaldiðóhætt var að stólaannars hefði orðið biðá að fengjum skóla.
Heimildir og samhengi
Séra Páll Ingimundarson í Gaulverjabæ (1812-1879) var upphafs- og forgöngumaður að elsta starfandi barnaskóla hérlendis, sem var haldinn á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Skólinn naut öflugs fylgis Guðmundar (1821-1895) Thorgrímsen í Húsinu, faktors verslunar Lefolii á Eb. frá 1847, sem og tveggja efnamanna: Þorleifs ríka Kolbeinssonar á Háeyri (1827, 1878, 1735), sem lagði til húsnæði í fyrstu og Adólfs Petersen (1799-1882 á Stokkseyri, sem sat í skólanefnd fyrsta árið og gaf meira en nokkur annar til skólans, 60 rd. Foreldrar Adólfs voru dönsk og faðir og afi kaup- og verslunarstjóar hérlendis, síðast á Eyrarbakka hjá Lambertsen, undanfara Lefolii. Kona Adólfs, Sigríður, var ein þriggja barna Jóns ríka í Móhúsum við Stokkseyri og fékk Adólf mikinn auð með henni. Í bók Guðna Jónssonar, Skyggni I, 5 má lesa að svo örlát var Sigriður að hennar hefði mátt geta við hlið karlanna sem studdu að skólanum.
41 bóndi ritaði undir mótmæli gegn skólahaldinu og var viðhorf þeirra landlægt, en Lefolii styrkti skólann með 30 rd. árlega, en skólagjöld voru 1,5 rd. fyrir hvert barn.
Að sögn Ingu Láru Baldvinsdóttur, í bók hennar, ,,Margur í sandinn hér markaði slóð", bls. 22, þá má rekja upphaf skólahalds á Eyrum til þess þegar Duus verslunarstjóri á Eyrarbakka réð til sín heimilskennara veturinn 1845-46. Kennarinn var Jens Sigurðsson frá Hrafnseyri, bróðir Jóns forseta.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Móðir sr. Páls var Guðrún Árnadóttir, prests í Holti, u. Efj., Sigurðssonar, systir frú Valgerðar á Grund, formóður Briemanna (sjá 1822).
Kristín, móðuramma sr. Páls, var dóttir Jakobs sterka, útgerðar- og kaupmanns á Búðum Eiríkssonar, d. 1767 og Guðrúnar Jónsdóttur prests Jónssonar á Staðarstað, systir blindu systranna þar, sjá 1730, 1733, 1764.
Auk Briemanna eru sömu ættar sm. Halldór Jakobsson (1764) og Jón Espólín Jónsson (1769).
Landlægu viðhorfi lýsir Gunnar Gunnarsson í Fjallkirkjunni I, 104 þegar Hvunndag-Begga segir við Ugga Greipsson: ,,Margur óvitinn hafði þegið himnasælu án þess að vera læs".
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
7 árum síðar lagði stjórnin fyrir Alþingi frumvarp um skólaskyldu í þéttbýli og kom hún til framkvæmda í Rvk. 1863 þótt ekki vantaði heldur úrtölur þar.
Um það, er Alþingi 30 árum síðar gerði skylt að öllum fermingarbörnum yrði kenndur lestur, skrift og reikningur, segir Páll Jónsson á Hjálmsstöðum í ævisögu 1954: ,,...blöskraði mörgum sá kostnaður sem af þessu myndi leiða: ,,Þeir eru orðnir snarvitlausir þarna fyrir sunnan enda hreinn og beinn óþarfi að kenna hverjum krakka, jafnvel sveitarómögum og fátækra manna stelpum””.
Katrín Sigvaldadóttir, Svipir og sagnir ll, bls. 103: ,,Þá var sá fordómur, að ef stúlkur lærðu að skrifa, var talið að þær mundu skrifa sér til skammar". Á við miðja 19. öld.
Auk skólans gekkst ,,Húsið” á Eyrarbakka fyrir horna- og fimleikaflokkum, leiksýningum, götulýsingu, og söng- og hljóðfærakennslu sem frúin, Sylvía Níelsdóttir, og a.m.k. Sylvía og Evgenia dætur hennar, önnuðust. Þar lærðu bræðurnir frá Syðraseli, Bjarni, faðir Friðriks tónskálds, og Ísólfur, faðir Páls. (1887, 1893).
Frú Sylvía átti bróðurinn Friðrik, langafa Áskels Jónssonar, organista á Akureyri, föður Harðar og þeirra systkina í beinan karllegg.
Ásgeir Ásgeirsson bendir á í Sögu Stykkishólms, að konungkjörnir þingmenn hafi reynst framfarasinnaðri í mannréttindamálum en bændur á þingi sem fylgdu Jóni Sigurðssyni í stjórnmálum. Hannes Þorsteinsson (1860-1935) ritstjóri, skýrir þennan hugsunarhátt svo í ævisögu sinni: ,,...ég var hið elsta barn hans ...og líklegastur til að verða foreldrunum til styrktar sem vinnumaður ..kauplítið eða kauplaust ...stundarhagsmunir foreldranna teknir fram yfir óskir og framtíð barnanna”.
,,Fyrsti barnaskóli á Íslandi var stofnaður í Vestmannaeyjum 1745, en lagðist niður skömmu eftir 1750”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í Suðra l, bls. 179 kemur fram að 1880 vill Sýslunefnd Árnessýslu veita 800 - 1000 kr. tll þess að húsnæði Barnaskólans á Eyrarbakka verði stækkað svo að þar verði haldinn unglingaskóli fyrir 20 pilta.
Heimildir: Einar Laxness, Íslands saga I, 61;
Guðni Jónsson, Stokkseyringasaga II, 126.
Faðir minn, kennarinn, Kristján Júl. Jóhannesson, bls. 31: ,,Farkennslan í íslenskum sveitum brúaði bilið milli gömlu heimilisfræðslunnar fyrr á árum og öldum og hins fastmótaða skólahalds sem við búum nú við. Hún sameinaði á margan hátt kosti beggja og var ótrúlega árangursrík þegar alls er gætt. Hún gaf heimilunum, fullorðna fólkinu, nokkra hlutdeild í fræðslunni þar sem það varð bæði veitendur og þiggjendur. Hún myndaði gott trúnaðarsamband á milli kennara og barna og tengsl fræðarans við foreldra ... veitti nemendum færi á mjög sjálfstæðum námsháttum. Þetta jók sjálfstæði þeirra og ábyrgð og vakti áhunga og elfdi sjálfmat.
Annmarkar farkennslunnar voru hins vegar miklir ... og hún veitti ekki þá alhliða þjálfun í námi, starfi og leik, sem ... skóli á að vera fær um né heldur þann félagslega þroska sem þar á að gefast."
Kngl. tilskipun um að börnum skuli kennt að skrifa og reiknina var gefin út 1880.