Norður frá Arnardal aldurtili
Lesið
Norður frá Arnardal aldurtiliítum gerðist - búið spil -Hannes Arnórs kvað á kilikveðju Grunnavíkur til.
Heimildir og samhengi
Þekkt stef úr Íslendingasögum er að bardagahetja, t.d. Gísli Súrsson og Þormóður Kolbrúnarskáld, kveði dýrt í andarslitrunum – jafnvel dauð, Gunnar úr haugnum.
Þetta lék eftir Grunnavíkurpresturinn, séra. Hannes Arnórsson f. ~1800, d. 18.12. 1851.
Gestur Vestfirðingur, 5. árg., bls. 7: ,,...týndust 4 menn af báti á Ísafirði (Skutulsfirði) og bar það svo við að bátur sá var á heimleið frá Ísafjarðarkaupstað, fyllti þá bátinn af grunnboðum og hvolfdi örskammt frá landi norður frá Arnardal. Á bátnum voru 6 menn og varð tveimur þeirra bjargað. Meðal hinna drukknuðu var og sóknarpresturinn úr Grunnavík, Hannes Arnórsson prófasts Jónssonar úr Vatnsfirði. Hann var gáfumaður og skáld enda er haft eptir þeim tveimur mönnum er bjargað var, að presturinn, sem komst með þeim á kjölinn, hafi þá orkt og mælt fram með sálarstyrk allmiklum, vers hjartnæmt mjög, en ekki námu þeir versið”. Sjá 1833 og Grunnvíkingabók I, 80.
Séra Hannes hefur sótt hraðkvæðnina til föður síns eins og fram kemur hér við 1833. En séra Arnór var og skáld og eftir hann er kvöldsálmurinn kunni, Til hafs sól hraðar sér, sem er í Sálmabók Þjóðkirkjunnar.