Einróma hrópa allir: ,,Nei!”
Lag Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829
Einróma hrópa allir: ,,Nei!”Amtmönnum sýndur hnefinn:,,Ísland skal um aldur meyog aldrei dönskum gefin!”
Heimildir og samhengi
Í kjölfar þess að Friðrik VII. afsalaði sér einveldi 1848 sem verið hafði þar frá 1661, fengu Danir nýja stjórnarskrá 5. júní 1849 með margvíslegum réttarbótum fyrir almenning, þótt þingræði yrði ekki þar fyrr en 1901.
Á þjóðfundi skyldi ákveða stöðu Íslands eftir einveldisafsalið.
25 hermenn fylgdu stam. Trampe til landsins og hefur það, og að fundinum var frestað um eitt ár, verið sett í samband við Norðurreið Skagfirðinga 1849, Pereatið 1850 og Dómkirkjuhneykslið það sama ár, sjá þar. Enn fremur, og ekki síður, viðkvæm staða í samningum Dana við hertogadæmin eftir stríðið frá 1848 - ritar Jón Sigurðsson í sendibréfi semSverrir Kristjánsson birtir í Ritsafni 1.
Síðan eftirfarandi:
Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, 145: ,,...frestun þjóðfundarins um eitt ár vorið 1850 og hersendingin eru runnar undan rifjum íslenskra embættismanna (sem óttuðust um líf sitt og limi eftir atburðina 1848 - 1850). Þegar danski innanríkisráðherrann hafði lesið kveinstafabréf þeirra, átti hann ekki annarra kosta völ".
Þegar ræða átti breytingartillögu þjóðfundarfulltrúa við frumvarp stjórnarinnar, sleit fundarstjóri, am. Páll Melsted (1791-1861), fundi og stam. Trampe ítrekaði það og gekk út, en Jón Sigurðsson og þingheimur mótmælti næstum allur.
Á málverki Gunnlaugs Blöndal kreppir Jón Sigurðsson hnefann, am. Trampe stendur til vinstri en am. Páll Melsted hæstur mitt á milli þeirra.
Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, bls. 154: ,,Trampe greifi hefur hlotið þung ámæli fyrir framkomu sína á þjóðfundinum 1851. Í raun er það ómaklegt. Ríkisráðið hafði ...lagt bann við því að þjóðfundurinn ræddi réttarstöðu Íslands á öðrum forsendum en þeim að Ísland væri partur af Danmerkurríki. Danastjórn gat tæpast farið öðruvísi að í þessu máli ...Hún var nú sem óðast að sameina aftur þá ríkishluta sem höfðu slitið sig lausa í byltingunum 1848. Við slíkar aðstæður gat hún ekki fyrir nokkurn mun gengið að réttarkröfum Íslendinga svo sem þær birtust í nefndaráliti þjóðfundarins.
Bls. 218: ,,Þegar Jón Sigurðsson vann að nefndarálitinu 1851 gerði hann sér engar vonir um að þær tillögur yrðu teknar til greina af stjórninni. Þær voru ekki ,,raunhæfar" í þeim skiningi að von væri um framkvæmd á þeim.
5 þjóðfundarmenn rituðu ekki undir umvöndunarbréf til Páls Melsted, - sjá Menn og menntir I, bls. 23 og Ísl. æviskrár V, 76, við nafn sr. Þórarins Kristjánssonar, langafa Kristjáns Eldjárns, forseta Íslands.
,,Kjörinn fulltrúi fyrir Vestmannaeyjar á þjóðfundinn var Loftur Jónsson á Þorlaugarstöðum, en kosning hans var afturkölluð af kjósendum vegna þess að hann hafði stutt að útbreiðslu mormónatrúar". (Íslenskar æviskrár, viðbætir, V, bls. 432). Sjá 1857, 1863.
Af þessu leiddi að danska stjórnarskráin tók ekki gildi á Íslandi og kóngur hélt áfram að vera einvaldur - í reynd ríkisstjórn hans - fram til 1871.
Nýtt tilboð kom 1865, um fjárveitingarvald, eftir að Danir höfðu tapað hertogadæmunum, en alþingi hafnaði því með 3ja atkvæða mun.
Danska stjórnin setti þá einhliða ,,stöðulög” 1871 – e.t.v. óhagstæðari en tilboð sem hafnað var 1865, 1867 og 1869, - en 1874 ,,færði" Kristján IX. Íslandi stjórnarskrá sem sæst var á um stund.
Þegar stöðulögin, einhliða sett af Dönum 1871, afnámu einveldið og fengu Alþingi fjárveitingarvald, hvort tveggja óumbeðið, þá lagðist stjórn hreppsmála á herðar bænda 1872. Þótti þá sýna sig að þeir ,,kusu heldur gamla einveldið og að kóngur og embættismenn hugsuðu fyrir þá" – segir í Endurminningum Indriða Einarssonar bls. 214.
Aðrar tilvísanir: Torfi K. Stefánsson Hjaltalín: Eldur á Möðruvöllum.
Jón Jónsson, alþm. Munkaþverá, Þjóðfundarfulltrúi S.Þing. 1851, úrdráttur úr bréfi það ár:
Frumvarpið er í öllu tilliti móti skapi og tilætlun manna. Það sleppir engu við þingið ... Íslendingar skulu kjósa 4 menn til landsþingsins í Danmörku en 2 til fólksþingsins. Kjörgengur til landsþingsins akal vera 40 ára.