Árið 1872

t.d.

4 vísur frá árinu 1872
  1. 1872Lag: 10 litlir negrastrákar

    Vistarskyldu frá nú flýjum

    fækkar við það snauðum
    hreppsnefndir og harmoníum
    og hagstætt verð á sauðum.
    1 erindi til viðbótar

    Sveitirnar megnuðu ekki lengur að framfleyta fjölgandi fólki. Vegna andstöðu alþingis - vistarbandsins - óx þéttbýli lítið. Bændur máttu ekki sjá af vinnuafli úr sveitum enda vélar ekki komnar til sögu. Vesturfarir…

    Hlusta
    +7
  2. 1872Lag: Kvölda tekur, sest er sól

    Valgerður Árnadóttir dó

    drengur góður, svarkur þó
    af Briemum gerðist frúin frjó
    fæddist vestra, Grund á bjó.
    1 erindi til viðbótar

    Klemenz Jónsson: Grund, bls. 206, endursagt: Kona Gunnlaugs Briem var Valgerður Árnadóttir, fædd 1778 á Breiðabólstað á Skógaströnd, dóttir séra Árna Sigurðssonar, síðar prófasts í Holti undir Eyjafjöllum og Kristínar…

    Hlusta
    mdm. Valgerður Árnadóttir, Grund, Ef.Grund, Eyjafirði+1
  3. 1872Yfirlit 19. aldarLag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína

    Bóndanum, Helga í Birtingaholti,

    var boðið í faktorsins Húsi' upp á svín
    Thorgrímsen skenkti af tign meður stolti
    teitinu stýrði er dreypti á vín.
    En búðar- hans lokurnar brennivínsstaup
    báru á ,,diskinn" og hver og einn saup.
    Eftir þær veitingar skaup hraut af skolti
    skirrtust ei óhikað gera' út um kaup.

    Ágúst Helgason í Birtingaholti, Endurminningar, bls. 150: ,,Fyrstu ferð mína fór ég þangað (til Eyrarbakka) þegar ég var á 10. ári, 1872. Kvöldið sem komið var til Eyrarbakka bauð verslunarstjórinn, Guðmundur…

    Hlusta
    Ágúst HelgasonSölubúð Lefolii, EyrarbakkaHúsið, Eyrarbakka, 1765+5
  4. 1872

    Læknir veit - þótt lífi hraki -

    lengi megi teygja
    hermt að Skúli hests á baki
    helst þó vildi deyja.

    Skúli Thorarensen (1805-1872) læknir, Móeiðarhvoli, yngsti sonur sm. Vigfúsar Þórarinssonar á Hlíðarenda og k.h., Steinunnar Bjarnadóttur landlæknis. Sjá 1760. Finnur á Kjörseyri, Þjóðhættir, bls. 102: ,,Þá er frændi…