Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1849
1849
1849

Ölfusbændur einum róm

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

ÖÖlfusbændur einum rómandúð lýstu' á Þingi:,,illgresi, en ekki blómeyðileggi, stingienda hefur ekkert gagnunnið þessu landidraga þess ei viljum vagná villustiga randi".

Glúmur Gylfason · 1849

Heimildir og samhengi

Ráðgefandi þing kom fyrst saman í Reykjavík 1845.
Var þá lagður ,,alþingistollur" á fasteiginir að 3/4 og lausafé að 1/4. Sýslumenn reiknuðu út og innheimtu. (Tilvísun í Einar Laxness, Íslands saga, 27).

Ævisaga dr. Pjeturs Pjeturssonar, bls. 38, sbr. Þjóðólf II, 1850, 139; Rvk. póstur III, 1849, 145:
,,1849 neituðu bændur í Ölfus- og Selvogshreppum í einu hljóði að greiða alþingiskostnaðinn af þeim ástæðum ...að alþingi hefði ekki unnið landinu gagn. Fyrir þetta tiltæki voru 3 hreppstjórar settir af".

Eldur á Möðruvöllum, 598: ,,...árið 1861 höfðu Þingeyingar risið upp gegn hækkun alþingistolla og samið við sýslumann um að borga aðeins helming þeirra".

Norðanfari 1865, IV, 29: ,,Þingið landplága sem ekki verði undan komist." og VIII, 94: ,,illa gangi að flytja þingtíðindi út um landið, kennt áhugaleysi landsmanna, sprottið af ólund þeirra við og vantrausti á þinginu".

Í Vestlendingar II, 1, bls. 30 eftir Lúðvík Kristjánsson bryddar á líku viðhorfi hjá séra Sigurði föður Jóns forseta sem segir fæsta innfædda spá því að heill muni stafa af Alþingi sem leggja muni þungar álögur á almúgann.
Sigurður kveðst muni kjósa son sinn til Þjóðfundarins af því að hann langi til að sjá hann.
Á þessum tíma snerist lífsbaráttan um það að hafa í sig og á.

Friðrik VII. kom til valda í janúar 1848, sá er heimsótti Ísland sem krónprins 1834. Hann afsalaði sér einveldi eftir að 12 þúsund danskra þjóðfrelsismanna höfðu gengið kröfugöngu eftir Strikinu 21. mars og hrópað Parísarslagorðin sem skagfirskir Norðurreiðarmenn létu dynja á Grími amtmanni þetta ár, sjá þar.
Ný stjórnarskrá tók gildi í Danmörk 5. júní 1849, en ekki á Íslandi vegna úrslita Þjóðfundarins 1851.
Einn þeirra níu manna sem falið var að semja stjórnarskrána var Fjölnismaðurinn Brynjólfur Pétursson.
Þar eru ýmsar nýjungar sem þinginu þóknast - afnemur skyldumætingar í messur, samþykkir jafnrétti dætra og sona til arfs - en annað ekki, svo sem prent- og trúfrelsi,- allt við misjafnar undirtektir landsmanna. Sjá hér, t.d. 1850, 1855 og 1866.

Íslenskar æviskrár 1. bindi, bls. 4:
,,Álfur egðski (9. öld). Landnámsmaður að Gnúpum í Ölfusi, og er við hann kennt, þann veg, að ós sá, er hann kom í skipi sínu, var nefndur eftir honum Álfós (í fornmáli Alfós), og breyttist það að hljóðlögum tungunnar í Ölfus, og færðist á byggðina alla".

Vefurfaktalink.dk (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1849

  • Grími margt þeir báru á brýn
  • Ei fraus Þórði í æðum blóð
← 1849Grími margt þeir báru á brýn1849 →Ei fraus Þórði í æðum blóð