Ei fraus Þórði í æðum blóð
Lag Fellibylja skellir skúr
sr. Bjarni Þorsteinsson 893
Ei fraus Þórði í æðum blóðá íshellu í skafrenningiþyngdist svo eitt fagurt fljóðog fæddist barn í Húnaþingi.
Heimildir og samhengi
Gísli Konráðssson; Saga Skagastrandar og Skagamanna, bls. 165:
,,Guðmundur hét maður sem á vistum var á Svanagrund, hniginn að aldri.
Hann var son Þóðar sem ýmist var kallaður Kvæða- eða Kvenna-Þórður og sögðu Húnvetningar að væri getinn úti á Svínavatnsísi í rennidrifi, því að móðir hans varð að ættfæra hann og greina stund og stað.
Raddmaður er sagt að Guðmundur væri sem faðir hans, en allt skorti hann annað við Þórð, því að vel var Þórður viti borinn, og sagt var að hann væri vel að sér í fleiru."
Gísli lýkur sögu Guðmundar Þórðarsonar í Skagafirði á upphafsstefi ævisögunnar - eða því sem næst: ,,ís á Áshildarholtsvatni brast undir honum og þó að dreginn væri að lokum upp og studdur áleiðis til Sjávarborgar þá lést hann áður en þangað næði".