Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1837
1837
1837

Harðar gerast glímurnar

Hljóðbrot0:00

Lag Jeg má bera hallan haus - Bj.Þ. 847

HHarðar gerast glímurnargrátt er Breiðfjörð leikinnJónas ræðst á rímurnarrakkar niður beykinn.

Glúmur Gylfason · 1837

Heimildir og samhengi

Jónas Hallgrímsson (1807-1845) gagnrýndi rímnakveðskap í Fjölni og beindi spjótum sínum að fremsta þálifandi rímnaskáldinu, Sigurði Breiðfjörð Eiríkssyni (1798Wikiwand (opnast í nýjum flipa) – 1846Wikiwand (opnast í nýjum flipa)), sem var beykir að iðn. Sigurður hafði látið hafa sig til - geta má sér til um með hverju - að yrkja Fjölni til niðrunar. Sigurður var eftirlætisskáld þjóðarinnar – ekki hvað síst eftir að Númarímur hans voru prentaðar 1835 – og breytti dómur Jónasar því ekki.
Rímur ortu alþýðumenn út frá riddarasögum og voru kveðnar á kvöldvökum og einna lengst á Ströndum, en þar náði útvarp seint útbreiðslu vegna þess hve torvelt var að komast í rafhleðslutæki. Sáust merki rímna og riddarasagna lengi í mannanöfnum þar.
Frá Kaupmannahafnardvöl Sigurðar Breiðfjörð segir Aðalgeir Kristjánsson í Hafnarslóð sinni á bls. 219 - 223 og fer á kostum.

Oscar Clausen, Sögur af Snæfellsnesi, III, 191: ,,Sigurður Breiðfjörð mun hafa verið einn fyrsti innlendi beykirinn hér á landi (lærði ytra) og var hann í Stykkishólmi nokkur ár. Vann að beykisiðn að haustinu, en lék sér að vetrinum. Hann var í miklu uppáhaldi hjá Árna Thorlacius (sjá 1846) og eins konar skjólstæðingur hans”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

1794 ritaði Stefán Þórarinsson í Rit þess Konúngliga Íslenzka Lærdómslistafjelags, 13. b. Kh., bls. 233: ,,Þaradauki lesa bændr ...Rímurnar, sem eru til lítillar upplýsingar".

Hannes Pétursson, Heimildarþættir III, 113: ,,Vísir menn hyggja að rímur hafi komið upp í bókmenntum hérlendis á 14. öld. ... Fólk hlýddi til í sæti sínu þegar kvæðamaður fór með söguefnið. ... Þetta gekk fram á síðari helming 19. aldar. ... Rímur eru misgöfugar bókmenntir ... stundum haglegar og skemmtilegar á eddubornu sérmáli ... en leiðinlegastar alls þegar klambur og meiningarleysa ætla engan enda að taka".

Í Stuðlabergi 2/2023, er viðtal Ragnars Inga Aðalsteinssonar við forstöðumann Árnastofnunar, Guðrúnu Nordal. sem segir m. a: ,,Við eigum gríðarlegt safn af rímum, ekki aðeins í okkar safni, heldur fyrst og fremst í handritadeildinni á Landsbókasafni þar sem þúsundir handrita frá seinni öldum eru geymdar. Íslendingar elskuðu þessa kveðskapargrein og iðkuðu í meira en fimm hundruð ár, kunnu rímur utanbókar og fóru með - og kváðu. Þetta var allt varðveitt í minni og borið þannig áfram. Í þjóðfræðasafni okkar eigum við mjög fágætar upptökur af fólki að kveða rímur. Það tókst að ná í skottið á þessari lifandi munnlegu hefð. Það er enn eftir að rannsaka mjög mikið af gömlum rímum og gefa út".

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1836Fjölnir veitti Sveini svar:1838 →Svaramaðurinn sýndist þar