Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1821
1821
1821

Kjærnested nyrðra kennir sund

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

KKjærnested nyrðra kennir sundkann á því tökin þýðhefur og líka lagt á stundlækningar, rennismíð.Eyfirðingum brá í brúnþar bændur tóku að fréttaá Skipalóni tækist túnmeð tólum jafna´og slétta.

Glúmur Gylfason · 1821

Heimildir og samhengi

Jón Kjærnested (1798-1836) frá Skriðu í Hörgárdal var fyrir verðleika föður síns, Þorláks Hallgrímssonar (1754-1846), frumkvöðuls í (trjá)ræktun, boðið til jarðræktarnáms í Danmörk og kynnti sér og lærði, auk þess sem nefnt er í vísunni, dýralækningar og hljóðfæraleik og sneri nú heim aftur.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Skógræktarritið 2020, bls. 8: ,,Feðgarnir ...gerðu tilraunir til að ala upp björk og reyni ...döfnuðu nokkur tré ágætlega á Skriðu, í Fornhaga og Lóni í Hörgárdal, í Laufási og á Akureyri".

Til Danmerkur höfðu borist uppeldisáhrif frá Þjóðverjanum Friedrich Ludwig Jahn (1778-1852), ,,föður leikfiminnar", auk þess að vera faðir þjóðernisstefnu og gyðingahaturs þar i landi var hann boðberi líkamsræktar, sund þar með talið, og sameiningar þýskumælandi manna utan Austurríkis.
Sjá Der Spiegel, Geschichte 2021, nr. 1, bls. 60 og https:AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Gísli Konráðsson segir sund týnda íþrótt að kalla þegar hann segir frá Árna Magnússyni, bónda á Syðri-Ey í Vindhælishreppi sem kafaði eftir manni 1819. Árni þessi hafði numið sund af sjálfsdáðum segir Gísli í Sögu Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 86.

Jónas Hallgrímsson þýddi sundreglur Nachtegalls 1836:
,,En það fór með sundið eins og annað; þegar deyfðin kom í þjóðina, týndist sú mennt, og það er varla ofhermt, að fyrir 14 eða 15 árum hafi ekki verið fleiri en svo sem sex menn á öllu landinu, sem væru sjálfbjarga ef þeir lentu í polli sem þeir náðu ekki niðri í. Þá höfðu menn gleymt svo gjörsamlega öllu sundi, að ofurhugar báru grjót á sig, og skriðu svo eftir botninum yfir ár og síki, sem ekki voru of breið..."

Jónas Hallgrímsson orti um Jón, frænda sinn, látinn:

Vel sé þér, Jón, á værum beð
vinar af sjónum löngu liðinn
lúður á bón um himnafriðinn.
Kalt var á Fróni, Kjærnested!

Jón var umboðsmaður Möðruvallaklausturseigna í 4 ár til 1828, en þá tók við því mágur hans, Þorsteinn Daníelsson (1796-1882) stórbóndi á Skipalóni, útgerðarmaður, skútu- og kirkjusmiður.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Plógur, eða arður (?) lá í óhirðu á Skipalóni, líklegast þangað kominn með Jóni Kærnested, sem hestar fengu ekki dregið fyrr en Jens Stær, danskur jarðræktarmaður, tók það ráð að hýsa þá og fóðra vel uns þeir fengu dregið plóginn. Jens settist hér að og tamdi uxa þá sem undir hans stjórn drógu á sleðum allt grjótið til Þingeyrakirkju, (vígð 1877) vestan frá Bjargaósi.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Voru kraftar hans hafðir á orði og ,,vald hans yfir uxunum vakti furðu” ritar Guðrún Björnsdóttir í bók sinni, Íslenskar kvenhetjur, bls. 8. (Sjá 1877 og 1931). Þar er fjallað um kvenhetjuna, skíðakonuna og ljósmóðurina, Jakobínu, dóttur Jens Stær. Sést þá að honum hefur verið jafn sýnt um að temja börn sem dýr og það enda þótt dóttirin væri í móðurætt náskyld Vatnsenda-Rósu, sjá1931..

1851 kom Jón Hákonarson Espólín frá 3ja ára búnaðarnámi ytra, ferðaðist um og kenndi verklega búfræði, þ.á.m. notkun hestaverkfæra og fékk Jens Stær til hins sama í Skagafirði segir Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar, bls. 23, 26.
Íslenskar æviskrár, V, bls. 406
segja frá Jóni Péturssyni (1829-1893), sem komið hafi með fyrsta plóginn til Austurlands 1850.
Á fimmta áratug aldarinnar brýndi Jón forseti Sigurðsson bændur til plæginga. (Sverri Kristjánsson, Ritsafn I).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1821

  • Kristrún Þorsteins, Þingeyingur,
  • Skipbrotsmenn á Skaga hlutu
← 1820Illum tungum tamt ei varð1821 →Kristrún Þorsteins, Þingeyingur,