Skipbrotsmenn á Skaga hlutu

Skipbrotsmenn á Skaga hlutuí skemmu hafast viðuns sveitungar þar saman skutusilfri og veittu lið.

Glúmur Gylfason · 1821

Heimildir og samhengi

Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 88: „Nú var mjög kalt vor 1821 og hafísar miklir. Það var á langafrjádag að hvalfangarar (frá Glückstad) náðu landi á Þingskála á Skaga, er brotið höfðu skip sitt í ísi. ...Við það settu þeir bátana, sex að tölu og gengu á þá hálfur fimmti tugur manna og einn af þeim sveinn 11 vetra. Hafði þá brotið 60 mílur fyrir norðan land. ...Varð þeim ógurlegt erfiði að komast áfram á ísnum, urðu víða að setja yfir jaka og vaða afar djúpt krap á þeim. ...Tóku þeir land seint á föstudaginn, allir þrekaðir og sumir kalnir.
Karl sá er Steinn hét bjó á Þangskála með kerlingu sína og meystelpu eina. Hræddust þau mjög og ætluðu vera víkinga, báru grjót fyrir bæjarhurðina að innan og stungu upp í glugga. ...Brutust þeir þá í útiskemmu og stóðu þar um nóttina og tók þá því meira að kala.
Maður hét Pétur ...hann bjó í Kelduvík, næsta bæ innan Þingskála. Sá Pétur menn þessa og þóttist vita hvað vera mundi, vitjaði þeirra og gerði alla bændur vara við á Skaganum. Var þeim þá veittur allur beini. ...Fluttu Skagamenn þá vestur í Höfða, en Schram kaupmaður tók þá alla í hús. Urðu margir til að gefa þeim naut og sauði úr Skagafirði".
Þingskáli er austan við Deildarhamar, sem skilur á milli Húna- og Hegranesþings, nú Skagafjarðarsýslu.
Gísli nefnir þá sem mest gáfu: Pétur Pétursson prófast á Víðivöllum, Jón prófast Konráðsson á Mælifelli, Jakob Havstein kaupmann Hofsósi (faðir am. Péturs), am. Stefán Þórarinsson er gaf af konungssjóði.
Ari læknir Arason á Flugumýri fór vestur að lækna þá er kalnir voru.
Á 100 hestum fluttu Húnvetningar skipbrotsmennina til Reykjavíkur þar sem þeir leigðu sér skútu til Holtsetalands.

MyndbandVimeo (opnast í nýjum flipa)

Myndir