Illum tungum tamt ei varð
Lag Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618
Illum tungum tamt ei varðtugthús nefna konungsgarðbreytti því hvorki né bætti úr skákað beislaði Magnús sinn ljóðafák.
Heimildir og samhengi
Við skipan Moltkes í embætti stiptamtmanns 1819 var typtunarhúsið, núverandi stjórnarráðshús, rækilega tekið í gegn, en illa gekk að festa nýtt nafn á það, enda téður fákur Magnúsar Stephensen aldrei talinn kostagripur.
Með breyttri orðaröð er allt efni vísunnar beinlínis haft eftir Jóni biskupi Helgasyni úr Árbók Reykjavíkur fyrir árið 1820 nema hvað þar er Magnús nefndur Stephensen. (1814).
Getur húsið á myndinni, þar sem flaggað er Dannebrog, verið nokkuð annað en núverandi Austurstræti 22?
Bletturinn framan við ,,Konungsgarðinn" virðist nýttur til að rækta kartöflur og /eða grænmeti. sem margir reiknuðu til háðungar fram á 20. öld.
Saga Stjórnarráðshússins er rakin á eftirgreindri slóð sem úrdráttur er tekinn af hér að neðan.
Vefurstjornarradid.is (opnast í nýjum flipa)
,,Ludvig Moltke, 29 ára gamall af frægri aðalsætt, sem skipaður var stiftamtmaður Íslands árið 1819. Fyrri stiftamtmenn höfðu þá um skeið búið í litlu timburhúsi (nú Austurstræti 22, en hinum unga Moltke og konu hans, Reinholdine Frederikke Vilhelmine, fædd Bartenfleth, sem þótti nokkuð steigurlát, fannst slíkt hús ófullnægjandi fyrir sig og hið háa embætti. Þeim kom til hugar að gera mætti tugthúsið gamla, sem stóð þá tómt og ónotað, að verðugum embættisbústað. Nýi stiftamtmaðurinn sótti síðan um leyfi til þess gera húsið upp og breyta því og var fallist á það af stjórnvöldum í Kaupmannahöfn.
Hafist var handa við framkvæmdir og húsinu gjörbreytt veturinn 1819-1820. Allir gluggar voru stækkaðir, gólfið lækkað til að fá meiri lofthæð og settur bakdyrainngangur á húsið nyrst og brattur stigi frá honum upp á loft. Íbúð stiftamtmanns var komið fyrir í sunnanverðu húsinu en til vinstri þegar gengið var inn voru stiftamtmannsskrifstofurnar. Salur og vinnuherbergi voru baka til, uppi herbergi vinnuhjúa og stofustúlkna. Að húsabaki voru útihús því stiftamtmaðurinn þurfti bæði hesta og kýr. Túnið hans var Arnarhóll.
Eftir þetta var húsið ýmist nefnt Stiftamtshúsið eða Stiftamtmannshúsið einnig þó Kóngsgarður eða Konungsgarður. Moltke greifi og frú hans hurfu af landi brott 1824 en Moltke átti eftir að eiga langan feril, lengst sem sendiherra í París og einnig var hann utanríkisráðherra Dana um skeið. Við af honum tók Peter Fjeldsted Hoppe en hann þótti atkvæðalítill".
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)