Djöfull Steinku dáraði
Lag Yfir kaldan eyðisand
Djöfull Steinku dáraðidugði til þess Bjarniþó að illa áraðiað hún varð með barni.
Heimildir og samhengi
Á Sjöundá á Rauðasandi, næst við Skor, bjuggu í tvíbýli Bjarni Bjarnason (1761- 4/10 1805) og Steinunn Sveinsdóttir (1767-1805) sem myrtu maka sína, Guðrúnu Egilsdóttur og Jón Þorgrímsson.
Á Jóni vann Bjarni við Skor og barst hann þar í sjóinn, en fannst brátt rekinn.
Þau voru bæði dæmd til dauða á þremur dómstigum.
Steinunn lést í hegningarhúsinu við Arnarhól, Múrnum, 1805 og dysjuð á Skólavörðuholti en bein hennar flutt í Hólavallagarð 1914 þegar grjót var numið í Holtinu til hafnargerðar.
Um aftöku Bjarna segir sm. Espólín í Sögu frá Skagfirðingum II, 35, 11, sig hafa útvegað Þorleif Andrésson, er höggvið hafði Ingibjörgu Jónsdóttur, Hofstöðum 1789. ,,Var hann þá gamall en gaf þó kost á sér ef hann fengi 50 dali og væri fæddur suður og norður; þó varð því ekki skeytt og létust þeir syðra engan fá öruggan í landi hér ...var Bjarni látinn fara utan (til Noregs) með stórum kostnaði".
Skýringin mun sú, að faðir Jóns Espólín, sm. Jón Jakobsson á Espihóli, átti, eða hafði í vörslu öxina sem notuð var 1789.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Tilvísanir og heimildir:
Jón Helgason, Vér Íslands börn I, 151; Einar Laxness, Íslands saga III, 36.