Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1950
1950
1950

Tuttugasta öldin gekk í garð við glaum og spil/

Hljóðbrot0:00

Lag Tanzen möcht ich! - Die Csárdásfürstin - Kálmán

XX. öld, yfirlit til MCML

FYRRI HLUTI 20. ALDAR

TTuttugasta öldin gekk í garð við glaum og spil/Guð sagður dauður og fjandinn ekki til/Krónan dönsk, en veikin spönsk, sem verst lék okkur þá/vél kom í báta og síldin lét sér ná/margir samband misstu allt við móður jörð/þegar silfrið synti inn á Siglufjörð/svo kom bíllinn, sími, rafmagn, svo kom stríð/og frekar tvö en eitt og færðu Gósentíð.

SÍÐARI HLUTI 20. ALDAR

. https://www.youtube.com/shorts/J5pun3_Ft6QYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þorska' í stríði' af Bretum ekki talin lítillát/langtímum saman varð Friðrik aldrei mát/lengi vel í frjálsum Danir lágu í því oft/lengst stökk þá Vilhjálmur Einars og hæst í loft/aðra sem að tak var bæði og töggur í: /Torfa Bryngeirs, Clausenbræður, Huseby/Laxness, Kjarval, Vigdísi, Leifs og Ragga Bjarna Bö/Sigurbjörn, er skylt að muna sem og 14 -2.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1950

Heimildir og samhengi

,,Helvíti opnast í Evrópu" er textakynning DR 31. maí 2020 á kvikmyndinni Grænselandet um fyrri heimsstyrjöldina.
Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 15,
upplýsir að hagvaxtarskeið hafi byrjað á Íslandi um 1890 eftir að tekin var upp fríverslunarstefna í Evrópu. Við mætti bæta, að 1894 var vistarbandið leyst. Fyrir 1890 gilti hagfræði Björns í Brekkukoti, sjá 1619.
Guðjón Friðriksson, Saga Rvk. I, 427: ,,Vöruval var þá eins og best gerðist erlendis enda lítið um tolla og höft".

Gunnar Þór: ,,Í Höfn höfðu Verðandimenn setið við fótskör G. Brandesar og drukkið í sig boðskap Fr. Nietzsches: ,,Gott ist tot"”; minna vart við djöfulinn frá 1801 - Leirgerður - spurning þess vegna hvort Nietzsche og Brandes hefðu keypt bók Gunnars Þórs með þessum titli.
Dostojevskí: „Ef Guð er ekki til, þá er allt leyfilegt“, komst svo Hitler til valda í Þýskalandi, 1933.

Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson, 102-3, 159 og 199: ,,...ofurtrú aldalokamanna á framfarir ... manninum sé nánast allt fært”; og á bls. 247-250 er lýst glæsilegum aldamótafagnaði Reykvíkinga.

Viktoríutímanum lokið, beislinu sleppt; ísl. króna tengd danskri til 1922;
,,spánska" veikin 1918; vél í árabát á Ísafirði/Bolungarvík 1902; síld á Siglufirði 1903, rafmagn til ljósa í Hafnarfirði 1905; heimskreppa í fjármálum 1929;

Bruggið og bannárin, bls. 49: ,,Eldar heimsstyrjaldarinnar fyrri brunnu úti í Evrópu og Íslendingar söfuðu gjaldeyrisforða með útflutingi á hrossum, kindakjöti og fiski til stríðandi þjóða. Bjartsýni og framfaratrú var ríkjandi."

Guðjón Friðriksson: Saga Rvk.-ur I: 447: ,,Fyrri heimsstyrjaldarárin urðu veltitímar fyrir hina nýju stétt íslenskra heildsala. Þau skópu sjálfstætt Ísland, en hin síðari kom fótum undir landið efnalega".

Það gerðu þorskastríðin líka: Leikur Chaplin hér breska ljónið og Ísland?MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

J. Bogesen, kaup- og útgerðarmaður á Óseyri við Axlafjörð (í Sölku Völku HKL): ,,...stríðið kom með almennri hagsældog velmegun, en það þoldi ekki almenningur".


Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurfilmcentralen.dk (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurglatkistan.com (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Finnist einhverjum ei við hæfi að enda á 14 -2, þá virki hann eftirfarandi slóð:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

eða öllu heldur:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

%29#fpstate=ive&vld=cid:9c686648,vid:dZzaAMaEYyA,st:0Google (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Heimsmetið (?) 14-2, Danmörk-Ísland 1967, féll ld. 18. nóvember 2023 þegar Frakkar unnu Gíbraltar 14-0 tveimur dögum eftir að Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir og Þorsteinn Freyr Sigurðsson sungu ofanskráðan texta fyrir annálsvert.is við undirleik Einars Bjarts Egilssonar.

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1949Löngum hefir þessi þjóð1951 →Nýr formáli (Um annálsvert) fyrir ofan mynd. Fyrir neðan myndina sé allt óbreytt.