Nýr formáli (Um annálsvert) fyrir ofan mynd. Fyrir neðan myndina sé allt óbreytt.

Nýr formáli (Um annálsvert) fyrir ofan mynd. Fyrir neðan myndina sé allt óbreytt.

Glúmur Gylfason · 1951

Heimildir og samhengi

Um annálsvert.is
Á þessari vefsíðu eru færð í rím eitt eða fleiri annálsverð tíðindi hvers árs frá siðaskiptum þar til Ísland gekk í NATO.

Auk þess fær hver öld umfjöllun á lokaári sínu og tuttugasta öldin við 1950.

Síðuhöfundur ætlar sér hvorki sæti á skáldabekk né sagnfræðinga, en vonar að þegar rím hans fellur saman við annarra sögutexta og myndir verði til ítarefni sem geri sögu tímabilsins auðlærðari og nái að tengjast fleiri greinum.
Séra Einar Sigurðsson, Eydölum yrkir:
Kvæðin hafa þann kost með sér
þau kennast betur og lærast ger,
en málið laust úr minni fer.

Þessi er tilgangur síðunnar. Þarf þá ekki frekari vitna við: hér er hvorki á ferðinni list né skáldskapur. Þau tvö eiga það nefnilega sameiginlegt samkvæmt einni skilgreiningunni að hafa engan annan tilgang en sig sjálf, þ.e., að vera list og/eða skáldskapur.

Heimildirnar í hliðardálknum eru kveikja að ríminu og eru ekki túlkaðar samkvæmt þeirri söguskoðun sem var næstum einráð fram á níunda áratug 20. aldar.
Með því vill höfundur axla ábyrgð á því að hafa í hálfa öld - frá 1964 - frætt börn um Íslandssögu eins og um hana var fjallað í Kennaraskólanum af afburðakennara sem var tvítugur þegar út kom Íslandssaga Jónasar Jónssonar, 1916.

Axel Kristinsson segir í Hnignun, hvaða hnignun?, bls. 8: “Þegar þjóðin er búin að ákveða hvernig hún ætlar að minnast fortíðar sinnar þá er ekki auðvelt að telja henni hughvarf”.

Hér er það þó reynt með því að leyfa fyrri alda þjóðhetjum að vera börn síns tíma, háðar mannlegum breyskleika og láta þær persónur Íslandssögunnar, sem fæddust erlendis, njóta sannmælis. Þetta telst þó engin nýjung lengur þar eð sögurit og ævisögur sem út hafa komið þrjá til fjóra síðustu áratugi segja kost og löst á söguhetjum. (Sjá1816í 17. línu).

Þörf þjóða fyrir hetjur mun æ fyrir hendi, en eftir 100 ára fullveldi ætti þörfin fyrir óvini að hafa dvínað enda vandfundnir.

HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)