Enskir sendu ungan mann
Lag Mér um hug og hjarta nú
Enskir sendu ungan mannaleinan án vopnaKapall sagður kallast hannklókur munninn opna:,,Vissulega kunna kolkoma í þarfir brýnarþeirra án er víl og volvitið kveðjur mínar”.
Íslendingar! ökum seglumeftir vindum Bretafast ef þeirra fylgjum reglumfáum nóg að éta.
Heimildir og samhengi
Úr bók Gunnars Þórs Bjarnasonar, Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 270: ,,Ekstrabladet: Breskur ræðismaður er konungur, þjóðhöfðingi, einvaldur; hann ákveður hvað versla megi með og við hverja megi versla og við hvaða verði. Íslendingar þurfa aðeins að hlýða”.
Sama heimild: Í september 1914 höfðu Bretar sent hingað ræðismann, 27 ára tungumálagarp, E. Cable, sem e-k eins manns setulið. Hann fylgdist t.d. með framkvæmd viðskiptasamnings Breta við Ísland frá 22. júní 1916 og þrengdi og oftúlkaði hann að mati Sveins Björnssonar, íslenska samningamannsins, sem sagði fyrir unga manninum vaka að vinna sig í álit yfirmanna. Sjálfstæðismenn þversum, gagnrýndu samninginn og sögðu að kol hefði mátt fá frá USA, en kol voru tromp enskra í samningunum.
Féll Sveinn svo (langsum) í þingkosningunum 1916.
Hannes Jónsson, Endurminningar, bls. 117: ,,Enginn fékk nú að flytja inn vörur nema enski jarlinn, mr. Cable, leyfði. Hann var hér einráður, mesta hörkutól og ósvífinn, beitti ritskoðun og njósnum. Hann setti menn á svartan lista, útilokaði þá frá innflutningi".
Jón Þ. Þór, Höndlað við Pollinn, bls. 120: ,,Bretar höfðu ráð Íslendinga í hendi sér. Þeir gátu komið í veg fyrir að kol flyttust til landsins en innflutningsbann á kolum hefði valdið íslenskum sjávarútvegi og ýmiss konar annarri atvinnustarfsemi þungum búdsifjum auk þess sem landsmenn þurftu mjög á kolum að halda til húshitunar og hvers kyns eldsmats á heimilum".
Nafn ræðismannsins varð í munni Íslendinga ,,Kapall”, (hross).
Í bók Þórs Whitehead ,,Milli vonar og ótta" er á bls. 85 sagt frá því, að Cable hafi meinað Gunnari Gunnarssyni að flytja utan bjarndýrsfeld. Skáldinu hafi mislíkað stórlega og ekki litið Breta réttu auga síðan.
Síðari vísan sækir efni til bls. 42 í bók Þórs Whitehead, Ófriður í aðsigi, sem segir ,,það hafa auðveldað landstjórninni að aka seglum eftir vindunum frá Lundúnum" - þ.e., að standa við samninginn sem Sveinn Björnsson gerði við enska 1916 - að skrif Morgunblaðsins hafi verið mjög fjandsamleg Miðveldunum að mati vina Þjóðverja - nefnir Dr. Alexander Jóhannesson, alþm. Bjarna frá Vogi, heiðursprófessor Guðbrand Jónsson og Pétur Halldórsson síðar borgarstjóra. En drýgstan þátt í að Íslendingar snerust gegn Miðveldunum hafi átt ,,ódulbúin valdastefna keisarans, brot Þjóðverja á hlutleysi Belgíu og ótakmarkaður kafbátahernaður".