Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1917
1917
1917

Þá Einar Ben. fær borguð út

Hljóðbrot0:00

Lag Mér um hug og hjarta nú

ÞÞá Einar Ben. fær borguð útbréfin sín í TítanBakkus rembi hnýtir hnútheilsan tekur svíkja' h'annaftur verður ekki jöfnaldurs þyngdist byrðier hann sá að engin höfnyrði í Skerjafirði.

Glúmur Gylfason · 1917

Heimildir og samhengi

Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson II, 417.
Úr Endurminningum Valgerðar Zoëga: ,,Seint á stríðsárunum gengu hlutabréf Titans kaupum og sölum í Noregi ... seldi Einar þá af hlutabréfum sínum í félaginu fyrir nokkuð á þriðja hundrað þúsund krónur (4-5% af fjárlögum) og var það stærsta upphæðin sem hann átti í reiðufé nokkurn tíma”.
Bls. 423, úrdr: Með hjálp Ólafíu Jóhannsdóttur finnur Valgerður Zoëga Einar í undirheimum Kristjaníu nær dauða en lífi af drykkju.
Síðla sumars eru þau hjón komin á Skodsborg Sanatorium á Eyrarsundsströnd N-Sjálands.
Eftir 3 ár var þetta fé þrotið.
(Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson III, 60).

Annað félag hafði Einar stofnað í Lundúnum um hafnargerð við Nauthólsvík í Skerjafirði. Þær fyrirætlanir flýttu fyrir því að byrjað var á Reykjavíkurhöfn hinum megin við Seltjarnarnesið og varð þá ekkert úr höfn í Fossvogi. (Sama heimild).
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1917

  • Styrjöld og skömmtun skollin á
  • Enskir sendu ungan mann
  • Þorlákur hafði viðskiptavit
  • Verslun Guðlaugs lá nær lá
  • Íhald sér sig ekki úr færi
← 1917Styrjöld og skömmtun skollin á1917 →Enskir sendu ungan mann