Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1917
1917
1917

Styrjöld og skömmtun skollin á

Hljóðbrot0:00

Lag Nú látum oss líkamann grafa - SB 275

SStyrjöld og skömmtun skollin áskrúfast upp verð á kolum þáráðherrastóla þurfum þrjáþar af einn skósmiður, VBK

Glúmur Gylfason · 1917

Heimildir og samhengi

Heimsstyrjöldin fyrri byrjaði 1914, sjá þar. Hún einkenndist af kyrrstöðum skotgrafahernaði.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Embætti landritara lagt niður, (lr. var Klemens Jónsson, er verður forstjóri í Titan Þjórsárfossafélaginu 1918 á ráðherralaunum) þá þriggja ráðherra ríkisstjórn - í stað eins áður – studd af 32 þingmönnum af 40 og stofnar Landsverslun með nauðsynjar til þess að forðast skort í heimsstyrjöldinni, og varð e-k undanfari SÍS með 32% verslunar.
Jónas frá Hriflu nefnir þetta þjóðstjórn og þá hafi allt orðið með ró og spekt í þinginu og því hafi tekist að semja við Dani um sambandsmálið 1918. (Aldir og augnablik II, 91).

Hannes Jónsson (1892-1971) kaupmaður, segir í Endurminningar, bls. 101, að stríðsyfirlýsing Englendinga hafi fréttst eftir fjölmenna jarðarför í Reykjavík og fylgdin hafi hraðað sér í búðir í sparifötunum og hamstrað þarft og óþarft áður en vöruverð hækkaði. Jón, kaupmaður í Vaðnesi á Klapparstíg 31, var sá eini sem sýndi fyrirhyggju - flýtti sér ekki að selja, en safnaði birgðum. HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Björn (1858-1939) fjármálaráðherra Kristjánsson frá Hreiðurborg í Sandvíkurhreppi, Flóa, var fjölhæfur: bankastjóri, kaupmaður, skósmiður, tónlistarmaður, átti hlut í togaranum Coot (1904) og setti 3ja hestafla gufuvél í teinæring sinn 1896 og stýrði sjálfur. Hann lét af starfi ráðherra um sumarið, en hvort hann tók aftur til við skósmíðar er vafasamt, en þær þóttu arðvænlegar á þessum fyrstu árum varanlegs og vatnshelds skófatnaðar. Hann var organisti eitt ár á Akureyri og lék á píanó þegar Músíkfjelag Reykjavíkur hélt ,,Stór Concert" í Iðnó 4. og 5. sept. 1897, ásamt hljóðfæraleikurum af danska varðskipinu Heimdalli sem stundum eru taldir fyrstu opinberu hljóðfæratónleikar í höfuðstaðnum og þóttu takast vel.

En Þórir Stephensen segir, ,,Dómkirkjan í Rvk.” II, 153, að þeir Björn og Steingrímur Johnsen hafi haldið fyrstu kirkjuhljómleikana í Dómkirkjunni 30. desember 1883.

Verslun Björns, VBK, var á Vesturgötu 2, Rvk. HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)
Að Björn hafi verið einn harðasti andstæðingur kaupfélaganna á fyrsta fjórðungi 20. aldar, segir Kjartan Ólafsson á bls. 190 í Verslunarsögu Vestur-Skaftfellinga.

Heimildir: Óðinn Melsted: Erlendir tónlistarmenn á Íslandi, 71;
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson II, 399;

Guðjón Friðriksson: Saga Reykjavíkur. Bærinn vaknar, 232.

Myndir

Einnig frá árinu 1917

  • Þá Einar Ben. fær borguð út
  • Enskir sendu ungan mann
  • Þorlákur hafði viðskiptavit
  • Verslun Guðlaugs lá nær lá
  • Íhald sér sig ekki úr færi
← 1916Hafði ei Dalaskáldið skjá1917 →Þá Einar Ben. fær borguð út