Heiðarlegir Húnvetningar
Lag Rósin
Heiðarlegir Húnvetningarhafa skömm á Flóanumer glæpsamlegir Gaulverjingargæta' ei fengs, en sóa' h'onumrýja að skinni betri bændurBakkus þá með ráðin fermaurapúki margur rændurMammon fáum tryggur er.
Heimildir og samhengi
Árin 1910 til 1915 misstu margir efnamenn á Suðurlandi hús og heimili eftir að hafa skrifað nafn sitt á þeim ókennilegt pappírsblað - víxil / skuldabréf - sem gestkomandi (heldri)menn frá kirkjustaðnum Gaulverjabæ réttu að þeim misjafnlega fyrirkölluðum.
Slík eyðublöð voru nýjung á þeim tíma - örskammt síðan bönkum fjölgaði í tvo - svo að lítil von var til þess að bændur úti um sveitir lands ættu von á því að kostað gæti aleiguna að skrifa nafnið sitt.
Jafnvel sýslumaðurinn og stjórn Sparisjóðs Árnessýslu á Eyrabakka stóðust þeim ekki snúning með þeim afleiðingum að við gjaldþrot sparisjóðsins misstu almúgamenn sparnað sinn sem geymdur var í sjóðnum.
Frá þessu segir Jón Ívarsson í bókinni Í skugga Gaulverjabæjar.
Þar eru nefndir til sögunnar ,,fjármálasnillingarnir" þrír, Jón Magnússon, Björn Gíslason og Erasmus Gíslason.
Björn er t.d. sagður ,,ófyrirleitinn, óvæginn, ósvífinn og óbilgjarn" og sýnist hafa allar sömu greiningar og þeir báðir til samans, Egill og Grettir, en Grettir hafði sér aðeins bróður baki en engan stjórnmálaflokk.
Það var árið 1914 sem uppskátt varð um þeirra glæpsamlega athæfi eftir að Jónas Jónsson frá Hriflu hafði skrifað fjölda greina í blað UMFÍ, Skinfaxa, undir rós, þar sem hann gaf þremenningunum nafnið Filistear.
Að þurfti Jónas til að afhjúpa svikahrappana var vegna þess að fórnarlömbin og ættingjar þeirra skömmuðust sín fyrir að hafa látið blekkjast og sögðu ekki frá.
Eigandi og ritstjóri Lögréttu, Þorsteinn Gíslason, var bróðir Björns og birti fjölda greina honum til stuðnings. (1901, 1910).
Jónas átti marga pólitíska andstæðinga sem skv. reglunni: ,,óvinur óvinar míns er vinur minn" tóku afstöðu með glæpamönnunum í blaðaskrifum og hindruðu fullnustu óskilorðsbundins fangelsisdóms.
Dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, þegar dómur féll 1933, átti harma að hefna gegn Jónasi og leyfði Birni Gíslasyni að handvelja sér tvo lækna sem gáfu honum vottorð um að hann þyldi ekki fangavist. Bls. 360 - 365 í bók Jóns Ívarssonar.
Meistararitgerð í sagnfræði við HÍ, ,,Efnahagsbrot og valdatafl", ritaði Gunnar S. Óskarsson um ,,harðvítuga og slóttuga" málsvörn Eggerts Claessen fyrir Björn Gíslason. Lokaorð hennar: ,,Náin tengsl milli stjórnvalds og dómsvalds hindruðu framgang efnahagsbrotamála og fullyrða má að fjármálamisferli hafi viðgengist í skjóli póitískrar hagsmunagæslu. Menn voru ójafnir fyri lögunum eftir því hvar þeir rákust í hjörð". (Sbr. 1698, 1699).
Það, að vitnað er til Húnvetninga, má skoða í ljósi þess sem frá þeim segir við árin 1745, 1822, 1828, 1829 og 1830.
Skálmöldinni húnvetnsku lauk 1863.
Á bls. 344 í bók Jóns M. Ívarssonar er viðtal sem Heimilispósturinn átti 1961 við höfuðpaurinn í Gaulverjabæjarmálunum, Björn Gíslason, (1878-1967).
Þar segist Björn hafa verið staurblankur í Kaupmannahöfn í síldarverðhruninu 1919, og skuldað Sparisjóði Árnessýslu 120 þúsund krónur í víxlum, - en heildartekjur Reykjavíkurbæjar voru þá 2.200.000 kr. Vissi þá af óseldri og ónýtir Íslandssíld í tunnum á Islandsbrygge sem aka átti sjóinn, en fékk leyfi til að hirða hana, bætti við pækli og seldi Pólverja ,,fyrir fjögur milljón pólsk mörk". Sparisjóðurinn fékk mörkin, en Björn víxlana. ,,...skömmu seinna sendu þeir mér mörkin aftur og sögðust ekki geta notað þau. ...Þeir á Eyrarbakka sögðu að þetta hefð verið helvítis svindl úr mér. ...Að vísu voru þau aldrei meira en 20 til 25 þúsund króna virði". MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sparisjóðurinn varð gjaldþrota.
Vefursunnlenska.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurdfs.is (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)