7. apríl ei mun né má
Lag Augun mín og augun þín
7. apríl ei mun né máúr minni voru snarastfrá höfuðstaðnum horfðu áheila skipshöfn farast.
Heimildir og samhengi
,,Einn mesti óhamingjudagur sem yfir Ísland hefur komið” sagði séra Ólafur Ólafsson (1855-1937).
Staddir milli Viðeyjar og lands röðuðu 20 skipverjar kútters Ingvars sér í reiða og á borðstokk. Mörg hundruð Reykvíkingar fylgdust með uns allir mennirnir voru horfnir í hafið. Engu var hægt að bjarga vegna veðurofsans.
Á Faxaflóa fórust sama dag 2 aðrir kútterar, Emelie og Sophie Wheatley, skipstjóri Jafet Ólafsson – sjá hér að framan - og komst enginn af.
Samtals drukknuðu 68 sjómenn þennan dag.
Heimildir: Matthías Þórðarson, Litið til baka; Öldin okkar.
Í kjölfarið byrjar Guðmundur Björnson, læknir, áróður fyrir slysavörnum og var Slysavarnarfélagið stofnað eftir að togarinn Jón forseti fórst 1928 og hafðist í gegn að það yrði ópólitískt. (1909).
Sjá og Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, bls. 61.
Vefurborgarsogusafn.is (opnast í nýjum flipa)
Árið 1986, þegar 80 ár voru liðin frá slysinu, fannst akkeri við Hjallasker við Viðey sem að öllum líkindum er af kútter Ingvari. Það stendur nú sem minnisvarði um mennina tuttugu sem fórust með skipinu.