Bjóða má nú ekki í
Lag Fljúga hvítu fiðrildin
Bjóða má nú ekki íómagana framar.Flest menn gera fjörunni ífinnist ekki kamar.
Heimildir og samhengi
Ný lög taka gildi á sviði almannaheilla og skyldi hætt að bjóða upp hreppsómaga - eða öllu heldur bjóða niður. Ekki hafa þessi lög verið virt ef marka má frásögn í Nesfréttum 11. tbl. 2018, bls. 8: Vefurborgarblod.is (opnast í nýjum flipa) um að barn hafi verið boðið upp á Eyrarbakka 1915.
Nauðungarflutningum ómaga á milli hreppa skyldi hætt 1935.
Viðtal tekið 1967 við níræða eineggja tvíbura sem hreppstjói bauð upp (niður) og þá að skildir og af viðtalinu skilst að hafi fyrst sés afrtur níræðir
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Einari skáldi Benediktssyni þótti margt illt í nýju lögunum.
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson II, 312: ,,...langhneykslanlegast að svipta þurfamenn rétti til hjónabands ... hefur giftingabannið lagt í rúst æru og velferð þúsunda á þúsundir ofan af saklausu fólki og valdið miklu um versta félagsböl Íslendinga, fólksfæðina”.
Dæmi um afskipti hreppsnefnda af hjónabandi og barneignum fátæklinga tekur Friðrik G. Olgeirsson í Langnesingasögu I., bls. 277.
Sverrir Kristjánsson skráir sögu Páls Júlíusar Pálssonar, ~8-10 ára sem boðinn var upp í Kirkjubæjarhreppi, V-Skaft. og lést hjá lægstbjóðanda úr ófeiti og barsmíðum 1903. Bókin heitir ,,Horfin tíð". Á bls. 83 segir: ,,Saga íslenskrar ómagaframfærslu er ófögur, mörkuð miskunnarleysi við lítilmagnann og grimmd ekki sjaldan. Þó er unnt að færa henni margt til afsökunar: landlæga örbirgð þjóðarinnar, umhleypingasama ævi tæknilausra manna sem gátu farið flokkum á vergang úr bjargálnum eftir eitt ísavor. ...Íslenski ómagin var réttlaus og varnarlaus".
Vera kann að nefnd lagabreyting um uppboð ómaga hafi verið gerð í kjölfar þessa atburðar þótt varla væri einsdæmi, en komst í hámæli og getið í blöðum.
,,Út úr myrkrinu" er ævisaga niðursetningsins Helgu á Engi, sem Gísli Sigurðsson skráði. Helga var boðin upp þetta ár öðru sinni, 6 ára gömul. Segir af því frá bls. 18, og er ekki lestur fyrir viðkvæma. Og enn var hún boðin upp 1914, samkvæmt ævisögunni, þrátt fyrir lögin frá 1907.
Guðmundur Magnússon: Íslensku ættarveldin, bls. 196:
,,Tvö ár í að Vatnsveita verði tengd húsum í Reykjavík, en þó er rennandi heitt og kalt vatn og raflýst vatnssalerni í nýja skrauthúsi Thors Jensen, Fríkirkjuvegi 11, og vakti umtal".
Guðjón Friðriksson, Bærinn vaknar II, 27: ,,Algengt var líka að menn færu niður í fjöru og stundum mátti sjá þar marga húkandi að þörfum sínum".
Sverrir Kristjánsson, Bóndinn á Brúnum, bls. 15.: ,,Hann (Eiríkur, 1876) komst að því að það þykir ekki fínt að kasta af sér vatni hvar sem maður stendur á strætum borgarinnar (Kaupmannahafnar). Slíkt frjálsræði þekkist bara á Íslandi. ...Heima á Íslandi var bærinn sópaður ...fyri jól og á sumardaginn fyrsta, en í Kaupmannahöfn eru öll stræti sópuð á hverjum degi".
Vatnssalerni voru í berklahælinu Vífilsstöðum sem tekið var í notkun 1911 og var nýjung.
Vatnsveita kom árið 1900 á Ísafirði, 1903 á Seyðisfirði, en á þeim slóðum voru norskar hvalstöðvar með vatnslögnum. 1904 kom vatnsveita í Hafnarfirði.
Hannes Jónsson, kaupmaður í Reykjavík, segir frá því í Endurminningum, bls. 129, að 1907 hafi Bæjarstjórn Reykjavíkur ráðið menn til þess að hreinsa kamrana, en þá hafi sumir brgðist illa við og þóttst eiga sinn skít sjálfir. Smám saman sættust menn svo á aukið hreinlæti í kjölfar taugveikifaraldurs. Hreinsunarátakið kann að hafa staðið í sambandi við konungskomuna.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Dæmi um þróun náðhúsa: 1945 gengst Vatna-Brandur Stefánsson (1928) fyrir fráveitu í Vík í Mýrdal (bls. 242 í bók Sigþórs Sigurðssonar um B.St.), en í kóngsins Kaupmannahöfn voru útikamrar við fjölbýlishús á Nörrebro, fram til 1970. Vatnssalerni upp fundin 1875 segir Der Spiegel Gesichte 2/2018, 51.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)