Fórust sjö í Ölfusá,
Lag Yfir kaldan eyðisand
Fórust sjö í Ölfusá,ei er lát á kífi,Ísland fallið í dauðadá,draugar helst með lífi.
Heimildir og samhengi
Ferjuslys við Óseyrarnes. Nokkuð af fólki séra Markúsar Sigurðssonar, pr. til Reynis í Mýrdal, fellur í Ölfusá 11. júní, en ferjan var ofhlaðin. Voru á leið til Markúsar nýja brauðs, Mosfells í Mosfellssveit. Komust af: prestur, meðhjálpari, vinnumaður og annar ferjumaðurinn.
Sá hét Snorri Ögmundsson, b. Hóli, Stokkseyrarhreppi. Dr. Guðni Jónsson getur hans einkum fyrir það að vera faðir Jóns skipasmiðs (1764-1846), sem bjó í og átti (Óseyrar)Nes frá 1796, en flutti eftir slysið að Stóra-Hrauni.
Þórður sýslumaður Sveinbjörnsson segir m.a. í umsókn til verðlauna 1832, að Jón hafi ,,stutt atvinnugreinar til sjós og lands meira en nokkur annar maður í Árnessýslu".
Austantórur Jóns Pálssonar segja 7 drukkna, kvenna ógetið. (1693).
Hafi Sigríður dóttir sr. Markúsar verið í ferjunni, þá hefur hún bjargast. Hún giftist 1814 Þorláki Loptsyni frá Hofi, sem prestur varð þar á Kjalarnesþingi og urðu tengdaforeldrar sr. Ólafs Johnsen á Stað, Rn., Einarssonar, bróður Ingibjargar konu Jóns forseta, sjá 1885, og þannig móðurforeldrar Þorláks kaupmanns Johnson, sjá 1917.
Biskupsstólar og skólar aflagðir í Skálholti og á Hólum sem og þinghald á Þingvöllum – allt á árunum 1798 til 1801.
Piltur, Tómas Björnsson, finnst látinn milli Eyrarbakka og Stokkseyrar - talið augljóst að þar væru að verki Skerflóðs-Móri og/eða Móhúsa- Skotta, draugar sem hvert mannsbarn vissi að héldu sig við ströndina þá. Vísindavefurinn fjallar um þessa drauga hér: AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Þór Vigfússon hafð söguna lengri en Vísindavefurinn.
Bæði var hann fararstjóri í rútu sem bilaði á Skeiðavegamótum og vissi sem skólameistari FSU að Móri hafði fylgt einhverjum ættingjanum þangað og búið um sig í tölvuveri Fjölbrautaskólans öllum til ama.
Tómas mun hafa knúið dyra á bæ nokkrum í Stokkseyrarhreppi en vísað frá fáklæddum í myrkri og vondu veðri. Þannig á sig kominn var hann draugum auðveld bráð, sem fýsti í félagsskap og urðu nú draugarnir þrír á Stokkseyrarfjöru.
Í lögum voru hörð viðurlög við því að úthýsa fólki í tilvikum sem þessum, en í reynd voru fátækir einskis metnir og fóru dómar eftir stéttarstöðu- sjá 1802. Enn sagt vitað eystra hver það var sem rak drenginn út í dauðann.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Dómar tóku að breytast í réttlætisátt í Danmörk frá og með einveldinu 1661, e.t.v. fyrir áhrif upplýsingarstefnunnar, sem tók íslenska forréttindastétt tíma að átta sig á, sbr. geðþóttadóma langt fram yfir 1700 sem tóku mið af ríkjandi stéttaskiptingu þar sem menn voru ekki jafnir fyrir lögunum.
Sjá 1698 og 1699, en þessar tilvitnanir sýna að ,,myrkur miðalda" grúfði þá enn yfir íslenskum dómsmálum. Þess vegna ekki út í hött að vitna í Gunnar Karlsson hér að neðan. (1802, 1907, 1922, 1935).
Gunnar Karlsson: Inngangur að miðöldum, bls. 67: ,,Á þessum tíma voru ekki allir jafnir fyrir lögunum. Á miðöldum skiptist samfélagið í þrjár stéttir: klerka, aðal og almúga ...meðlimir þeirra höfðu ekki sama rétt gagnvart lögum. Það var gróf skerðing á mannréttindum að koma fram við klerk eða aðalsmann eins og bónda.
Stundum var almúganum raunar skipt í tvo flokka, bændur og borgara. Öll er þessi skipting miðuð við karla, en konur hafa ...talist til sömu stéttar og eiginmenn þeirra og/eða feður".
Der Spiegel Gesichte 1. hefti 2021, bls. 16 telur að í kjölfar frönsku byltingarinnar 1789 hafi stéttaskiptingin farið að riðlast. Stúlkur sem þá fæddust áræddu fullorðnar að krefjast menntunar og atkvæðisréttar fyrir dætur sínar sem tók um eina öld.
Sverrir Kristjánsson, Með vorskipum, 146: ,,Upplitið á ...sögu íslenskra yfirvalda ...á þessum árum var ekki sérstaklega tilkomumikið, en niðri við rótina fór fram önnur saga, er gaf mikil fyrirheit".
Þau fyrirheit sem Sverrir Kristjánsson talar um mega hafa ræst með Bessastaðaskóla og þeim Hafnarstúdentum sem frá honum komu og lentu þar í félagsskap með Rask og Rafni. (1816, 1818).
Sverrir Jakobsson taldi í fyrirlestri Miðaldastofu HÍ 24.11. 2016, að aldamótin 1800 hafi verið lágpunktur Íslandssögunnar.
Vefuricelandmag.is (opnast í nýjum flipa)
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)