Dygði Óseyri engin brú
Lag Yfir kaldan eyðisand
Dygði Óseyri engin brúekki finnst sú tækniSunnlendingar Svein fá núsettan héraðslækni.
Heimildir og samhengi
Eyrarbakka- / Bássanda- / Bá(t)sendaflóð er sjór gekk á land frá Þjórsá og vestur um til Breiðafjarðar aðfararnótt 9. janúar. Staðurinn gengur á prenti undir þessum þremur nöfnum og stundum er flóðið kennt við Eyrarbakka.
Við jörðina Óseyri er kennd brúin við Ölfusárós, sjá 1693og 1800.
Eftirfarandi dæmi er fengið frá Guðna Jónssyni úr æviminningum Gríms Gíslasonar í Óseyrarnesi, bls. 31: ,,Haagen Jens Möller beykir hafði flutzt frá Danmörku til Eyrarbakka og setzt þar að. Hann var kvæntur íslenskri konu, Hallgerði Jónsdóttur hafnsögumanns í Garðbæ Bjarnasonar. ... Þau bjuggu á Skúmsstöðum þegar stóraflóð kom (1799). Hrundi þá geymsluhús sem Haagen beykir átti; þar var inni aleiga hans, en hann var fjáður vel. Þar af fannst ekkert nema brot úr peningakistli hans uppi á mýri. Var hann snauður eftir. En haft er eftir honum, að jafnánægður hafi hann etið söl eftir þetta eins og betri fæðu áður. Hann dó 1811".
Flóðið gerði út af við verslunarstaðinn Bá(t)senda og drukknaði þar ein kona.
Seltjarnarnes varð eyja. Sjá 1553.
Bók Ingu Láru Baldvinsdóttur, ,,Margur í sandinn hér markaði slóð", bls. 84, segir frá sjávarflóðum á Eyrarbakka 21. janúar 1925, 3. nóvember 1975, 14. desember 1977 og 9. janúar 1990, sem var hið mesta síðan 1799 enda féll loftvog niður í 943 mb. samfara stórstraumi. Sjór braut rúður í húsum og flæddi þar inn og bar með sér grjót. Tjón varð töluvert á mannvirkjum.
Sveinn Pálsson (1762-1840) skipaður læknir Suðurlands milli Hellisheiðar og Lómagnúps, að Vestmannaeyjum meðtöldum. Guðrún móðir Sveins var dóttir Jóns lrm. Eggertssonar, Ökrum, sem hét eftir föðurafa sínum og alnafna, sem fjallað er um 1670, 1682, 1683 og átti að maka Sigríði stórráðu Magnúsdóttur, d. 1694, (1633). Heimild: Ísl. æviskrár.
Sveinn gekk á Öræfajökul 1794 fyrstur manna svo vitað sé.
(Sjá Öldina átjándu).
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)