Önnur væri okkar sýn
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Önnur væri okkar sýnog ættum færri klókautan Steingríms og Espólínog allra þeirra bókatveggja biskupa frúin fínseint fyrnist Völu hróðurárbækur reit Espólínum ættir gerðist fróður.
Heimildir og samhengi
* 14/8 Steingrímur Jónsson, biskup 1824 til dd. 14/6 1845. (1825). Bókasafn hans eða öllu heldur konu hans, Valgerðar Jónsdóttur (1771-1856), ekkju bókamannsins Hannesar biskups, Finnssonar biskups, sonar fræðimannsins Jóns prf. Halldórssonar í Hítardal, varð ásamt bókagjöfum Rafns 1818, grunnur að Landsbókasafni Íslands, sem síðar bættist bókasafn Jóns forseta Sigurðssonar.
* 22/10 Jón Espólín d. 1836, sm. kraftajötunn, fræðimaður, ættfræðingur og sagnaritari Jónsson, sm. Eyjafjarðar, Jakobssonar útgm. sterka á Búðum, (sjá 1725, 1729, 1756, 1764, 1767) Eiríkssonar lrm. og ,,spakmennis” þar, Steindórssonar (1725).
Jón Espólín varð sm. Skagafjarðar 1803 og ,,var hinn mesti sagnfræðingur og bókmenntavinur og stofnaði lestrarfélag í Skagafirði". (Djúpdælasaga Stefáns Jónssonar, 78).
Hið ísl. bókmenntafélag byrjaði að gefa út Árbækur Espólíns 1821.
Föðuramma Jóns Espólíns, Guðrún Jónsdóttir, kona Jakobs sterka Eiríkssonar á Búðum, átti að móður mdm. á Staðastað, Kristínu Ólafsdóttur, ,,gáfukona mikil, skildi jafnvel og talaði latínu” segja Íslenskar æviskrár.
Frá atorkumanninum Jakobi Eiríkssyni og þeim mæðgum frá Staðastað, Kristínu og Guðrúnu um Kristínu Jakobsdóttur móður Valgerðar (d. 1872) Árnadóttur eru Briemarnir, synir þeirra Gunnlaugs, komnir og telur séra Ágúst Sigurðsson það skýra gengi þeirra að stórum hluta. Sjá 1822.
En auk þess voru þeir Búðamenn stórvaxnir og sterkir en kunnu misjafnlega með að fara, sbr. 1764, 1788.
(Páll Eggert Ólason, Ísl. æviskrár).
Oscar Clausen, Sögur af Snæfellsnesi, bls. 21: ,,Var Espólín ...jötunn að vexi og rammur að afli, ...höfði hærri en aðrir menn, ...bar léttilega 2 menn, sinn á hvorum handlegg og þann þriðja á bakinu”.