Almenna selur maðkað mjöl
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Almenna selur maðkað mjölmarkar djúpt sitt sporminnkar eigi Íslands bölEggert sigldi úr Skor.
Heimildir og samhengi
Skúlí fógeti Magnússon (1711-1794) kærir Almenna verslunarfélagið fyrir að flytja til landsins og selja maðkað mjöl, sem skoðunarmenn í Kaupmannahöfn höfðu áður dæmt ónýtt. Verslunarfélagið var árið 1772 dæmt til að greiða 4.400 rd. í sekt og var Mjölbótasjóðurinn stofnaður af því fé. Hátt í 1.000 Kýrverð.
Einar Laxness, Íslands saga I, 150: ,,...í konungsúrskurði 1844 er sjóðurinn talinn 7.500 ríkisdalir og þá ákveðið að því fé skyldi varið til flutnings latínuskóla frá Bessastöðum til Reykjavíkur og skólahússbyggingar þar". Þ.e. núverandi MR.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Varalögmaður, skáld, rithöfundur og fv. konglegur náttúruskoðari, Eggert Ólafsson, og frú hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir og fylgdarlið, farast á Breiðafirði
Almenna verslunarfélagið var þó ekki eitt um að reyna að selja skemmda matvöru:
Bændablaðið 9. sept. 2021, 17. árg., bls. 16 :
,,Að blaða í gömlum árgöngum af Búnaðarritinu er góð skemmtun. Í 18. árgangi frá árinu 1904 er fróðleg umfjöllun um afdrif íslensks saltkjöts sem flutt var til Kaupmannahafnar. Greinin ber fyrirsögnina: Saltkjötið íslenzka. 4000 pund grafin niður... Þar segir meðal annars: „Hinn 29. júlí var þess getið í dönskum blöðum, að 4000 pund af íslenzku sauðakjöti hafi verið gerð upptæk og grafin niður. Gufuskipið Utma kom 27. júlí til Kaupmannahafnar frá Newcastle með kjöt þetta og átti það að fara til verzlunar einnar hér í bænum. Á leiðinni hafði kjötið skemst, að því sem segir í blöðunum. Þá er það kom til Kaupmannahafnar sagði heilbrigðislögreglan, að það væri óhæfilegt til manneldis. Svo var alt kjötið gert upptækt, helt yfir það steinolíu og grafið niður á gjöreyðingarstofnun bæjarins á Enghavevegi. Kjöt þetta var frá Stokkseyri...""
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Jón Sigurðsson: Sigurður Jónsson í Ystafelli, bls. 117: (Ös við slástrun á Húsavík 1877) ,,Öllu var slátrað úti á blóðvelli ...hversu sem viðraði. Hvorki voru pallar né stólar heldur krupu menn við fláninguna á berri jörð. Þetta var æði sóðalegt í votviðrum. Gálgatré voru lögð á trönur. Þar voru skrokkarnir hengdir og tekið innar úr í gálga.. ...Fyrir kom að trönur biluðu og trén féllu með öllum skrokkunum niður í svaðið. Eitthvað var af þeim strokið með köldu vatni".
Almenna verslunarfélagið flutti til Íslands maðkað korn og var dæmt til að greiða skaðabætur, sjá slóð hér að neðan.
Fyrir skaðabæturnar var reist hús Menntaskólans í Reykjavík 1846.
Það hét lengi - a.m.k. til 1973 - að Danir hefðu gert það, þ.e., flutt skemmda korni til Íslands.
Um 250 árum síðar stendur í Bakþönkum Fréttablaðsins 25. janúar: ,,Íslendingar eiga í haturs-ástarsambandi við Dani og maðkaða mjölið verður seint fyrirgefið."
Á DR1, 26. sept. kl. 10.13 fjallaði ,,Bonderöven" Frank Erichsen, um kornrækt sína á Kastaniegaarden og hve erfitt væri að geyma korn óskemmt: mýs og mygla, strá, aðskotahlutir og hitastig væri það sem fylgjast þyrfti með, en ræktunin sjálf væri leikur einn í góðu árferði.