Gríska, hebreska, útræði og
Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869
Gríska, hebreska, útræði ogeldur geðjast Páli- árar, djöflar, áratog -,,Undir hamrastáli”.
Heimildir og samhengi
+ séra Páll Björnsson í Selárdal f.1621, var manna kunnugastur öllu því sem vísan greinir frá: fornmálafræðingur og ritaði bók á latínu um galdur, Character bestiæ - á íslensku: Kennimark kölska, útg. 1976 af Ísafold.
Einnig skipstjóri á eigin skútu sem hann smíðaði sjálfur ungur og gerði út frá 1647, sjá þar.
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 246: ,,...hann hafði útræði mikið, fann upp betra bátalag, ...hélt úti smáskútum og stýrði sjálfur ...fyrstur Íslendinga til þilskipaveiða ...vel að sér í siglingafræði, ...reiknaði út hnattstöðu Bjargtanga ...hálærður í grísku, hebresku og öðrum Austurlandamálum ...stóð framarlega í ofsóknum á galdramönnum".
(Móður)sýki konu sinar, Helgu Halldórsdóttur lm. Ólafssonar, kenndi hann göldrum og fékk brennda samtals 7 menn þar fyrir án þess konunni batnaði veikin, en hún lifði 87 ár. Sjá 1698.
Sjálfsævisaga séra Sigurjóns Einarssonar, sem Mbl. nefndi ,,rúbluprest”, heitir Undir hamrastáli, sem er lýsandi fyrir landslagið á bernskustöðvum höfundar sem voru slóðir séra Páls Björnssonar við utanverðan Arnarfjörð vestanmegin (sunnan).