Nýtilegu' ei neinu hent
Lag Yfir kaldan eyðisand
Nýtilegu' ei neinu hentneyðin til þess rekurei var Gísla görmum brenntgrafir kvenþjóð tekur.
Heimildir og samhengi
Desjamýrarannáll, V, 284: ,,Kom sú mikla plága á Ísland, sem kallast stórabóla
...Þessi sótt kom út á Eyrarbakka í fötum íslensks manns, Gísla Bjarnasonar frá Vetleifsholti. ...Tal manna er að fötin hafi verið í kistu og tunnu og að kistan hafi opnuð verið, en tunnan ei. Var haldið að landið mundi eyðst hafa, hefði hún líka opnuð verið, því þegar systir Gísla þvoði fötin, datt hún dauð niður".
Föt Gísla attestatusar (skv. Hvammsannál II, 679) Bjarnasonar og Guðrúnar Markúsdóttur fótalausa (sjá 1629 og 1682) voru send með skipi til Eyrarbakka, en hann lést úr bóluveikinni erlendis - eða í skipi á leiðinni, skv. Einari Laxness, Íslands saga III, 67.
Í Stórubólu, dóu ~18 þúsund manns. Eftir lifðu ~33 þúsund.
Á 90 mínútum dóu fjórir á Staðastað á meðan Árni Magnússon og Páll Vídalín voru þar. (Már Jónsson: Árni Magnússon, ævisaga, 257).
Mannfallið olli því að konur máttu taka grafir 1707 líkt og í svartadauða 1403.
1788 fannst mótefni gegn veikinni, - þar af kemur orðið ,,bólusetning".