Árið 1698

t.d.

2 vísur frá árinu 1698
  1. 1698Lag: Hani, krummi, hundur, svín

    Vígslu hlaut Jón Vídalín

    víða lesinn, fróður
    svo á bók sem brennivín
    biskup þótti góður.

    Vígður til biskups Jón Þorkelsson Vídalín (1666-1720). Ritaði Postillu, visiteraði lm. Odd Sigurðsson á Narfeyri 1713 og gerði þar frönskum vínum fræg skil. Mögnuðust þykir þrumuræða hans í Þingvallakirkju 1718. Jón var…

    Hlusta
    Jón VídalínVídalínspostilla
  2. 1698Lag: Ég að öllum háska hlæ

    Hólmfast böðull hýða vann

    heyra mátti brestinn
    16 högg fyrir höndlarann
    en 100 fyrir prestinn.
    1 erindi til viðbótar

    Tvær misfrægar hýðingar sama ár. Hafnarfjarðarkaupmaður, K. Storm, vill ekki kaupa 10 fiska af Hólmfasti Guðmundssyni á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd, sem þess vegna selur þá í Keflavík og því dæmdur af sm. Jóni…

    Hlusta
    Arnarfjarðardalir+5