Fullan aldarfjórðung tók
Lag Þegar ég geng út og inn, sr. BjÞ. 878
Fullan aldarfjórðung tókað fengjum amtmann settanMüller eins og opin bókog ýmsir vildu pretta' h'ann.
Heimildir og samhengi
Eins og aðallinn erlendis óttaðist íslenska valdastéttin (olígarkarnir - sbr. 1554) þær breytingar sem gerðar yrðu á landstjórninni með einveldi konungs eftir Kópavogsfundinn 1662. Að söfnuðu mútufé lofaði hm. Henrik Bjelk því að engar breytingar yrðu gerðar á meðan hann lifði. Við það var staðið. Bjelke dó 1683 og var þá skipaður landfógeti, Kristófer Heidemann, en látið dragast til 1688 að skipa í æðsta embætti Íslands, stiptamtmannsembættið, trúlega vegna þess að sá er það skyldi hljóta, Ulrik Christian Gyldenløve, sonur Kristjáns konungs V, var 5 ára, f. 1678. Næstur honum að völdum varð þá amtmaður. Þann titil fékk 1688 Daninn Christian Möller sem lesa má nánar um í Kríumálum 1691 og 1689 í Oddsmálum digra og1701, þegar hann, eins og Árni Magnússon og Vídalínarnir Páll og Jón, lagðist gegn viðleitni Lárusar Gottrup til að koma í veg fyrir verðhækkun á innfluttu korni í hallæri. Framkoma hans þar og í Kríumálinu gæti bent til þess að það sem Wikiwand kallar elliæri hans hafi verið Alzheimersjúkdómur.
Wikiwand: ,,Christian Müller er svo lýst að hann hafi hvorki haft stóran vöxt né mikið persónuálit.... elliær, og lagstur í kör þegar hann dó".
Í umfjöllun við 1701 sést Möller snúast á sveif með kaupmönnum.
Giskað hefur verið á að þeir hafi lagt agn fyrir hann eða hann gerst hluthafi í versluninni.
Hvorugt á samt við um þríeykið: Pál og Jón Vídalín og Árna Magnússon. (1701).