Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1942
1942
1942

Íhalds munu í gráðugt gin

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

ÍÍhalds munu í gráðugt gingæsir steiktar fljúgaÓli á Hermann ei að vin,,eiða rjúfa, ljúga”.

Glúmur Gylfason · 1942

Heimildir og samhengi

Fólksflutningar til þéttbýlis í vinnu fyrir herinn, gera atkvæðajöfnun milli þétt- og dreifbýlis áhugaverða fyrir verkalýðsflokkana sem sækja fylgi á mölina.
Þá verður ,,eiðrofið”, þegar Alþýðuflokkur semur nýtt kjördæmafrumvarp. Það var tilboð sem Sjálfstæðisflokkur gat ekki hafnað.
En forsætisráðherra, Hermann Jónasson, sagðist hafa orð Ólafs Thors og Jakobs Möller fyrir því að kosningalögum yrði ekki breytt á kjörtímabilinu, en Ólafur sagðist hafa heitið því að eiga ekki frumkvæði að slíku.
Slitnaði svo Þjóðstjórnarsamstarfið.
Guðfræðiprófessor og rh., Magnús (1887-1958) Jónsson (D), studdi atkvæði sitt tilvitnun í Vídalínspostillu: ,,sex steiktar gæsir myndu fljúga upp í Flokkinn".
Vídalín segir hins vegar: ,,Öngvum hefur Guð heitið að steikt gæs skuli fljúga í munn honum” enda unnust ekki nema þrjú þingsæti og úr varð pattstaða og óvild.

Alþýðuflokkurinn, sem flutt hafði tillöguna um kjördæmabreytinguna, tapaði einu þingsæti, Framsókn tapaði 5 mönnum, en Sósíalistar voru sigurvegarar, fengu 10 þingmenn, en Kommúnistaflokkur þeirra hafði haft 3 áður.
Þarna sjást áhrif þess að 1938 stofnaði hluti Alþýðuflokksmanna með Héðni Valdimarssyni, Sósíalistaflokkinn með kommúnistum, sem þá brutu á bak aftur veldi Alþýðuflokksins í ASÍ með aðstoð Sjálfstæðisflokksmanna í verkalýðshreyfingunni.
Þetta er á allra vitorði, en má t.d. sjá í ævisögum Hannibals Valdimarssonar á bls. 297 og Eysteins Jónssonar, 2.bindi á bls. 13.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Tók það þingið tvö ár að koma saman stjórn, en fjandskapaðist þó við ríkisstjórann, fyrir að skipa utanþingsstjórn 16. 12. 1942 eftir tveggja mánaða stjórnarkreppu, en þingmenn náðu helst saman um að torvelda henni störfin með þeim árangri að einn fjögurra ráðherra sagði af sér þess vegna í apríl 1943 og annar í september 1944. Varð þá alþingi til neytt að mynda ríkisstjórn 21. október 1944, Nýsköpunarstjórnina: A, C, D. En 5 þingmenn D-lista studdu ekki Nýsköpunarstjórnina.
Heimild m.a.: Gunnar M. Magnúss: Virkið í norðri II, 138 og 169.
Einar Laxness, Íslands saga III, 102.

Halldór Stefánsson alþm. segir í Refskák stjórnmálaflokkanna frá bls. 23, að kjördæmaskipulagið hafi orðið til áður en stjórnmálaflokkar voru stofnaðir, 1916 og 1924, og hafi því ekki verið sniðið að flokkslegum sjónarmiðum.

Myndir

Einnig frá árinu 1942

  • Á ríkisstjórn ei ræður bóla
  • Bændur vantar vinnumenn
  • Greifafrúna hún María Markan
  • Úrkynjun nýlista Hrifla sig hélt
← 1941Listafólkið gerði gagn1942 →Á ríkisstjórn ei ræður bóla