Listafólkið gerði gagn
Listafólkið gerði gagngróf ei pund í sverðiKristmanns þótti venusvagnvökva Hveragerði.
Heimildir og samhengi
Af vefnum
Vefurlistvinir.is (opnast í nýjum flipa)
eru eftirfarandi upplýsingar fengnar um listamannabæinn Hveragerði:
,,Listamennirnir sem fluttu til Hveragerðis hernámsárið 1940 og næstu árin á eftir eygðu von um betri og hagkvæmari kjör og aðbúnað en þeir lifðu við á kreppuárunum fyrir stríð. ...Fyrstir fluttu Jóhannes úr Kötlum með fjölskyldu sína í október 1940. Kristmann Guðmundsson varð húsnæðislaus í Reykjavík snemma árs 1941 og flutti þá til Hveragerðis ásamt fimmtu konu sinni, Guðrúnu Guðjónsdóttur. Kristmann kvæntist níu sinnum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þessi telur upp 14:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Kristmann byggði sér húsið Garðshorn við Skáldagötuna og kom þar upp fágætum skrúðgarði. Um sama leyti mun Kristinn Pétursson listmálari hafa flutt, Ríkarður Jónsson myndskeri byggði sér sumarbústað við Skáldagötuna sama ár. Árið eftir flutti séra Helgi Sveinsson og fjölskylda hans í götuna hjá þeim skáldbræðrum. Þarna varð til þríeyki skálda sem hafði gaman af því að yrkja vísur um mannlífið í Hveragerði. Sumar urðu landskunnar. Samvinna þeirra og garðyrkjumanna varð að árlegum garðyrkju- og listamannaböllum.
Þremenningarnir sömdu fyrsta Hveragerðisbraginn þar sem allar vísurnar enduðu á þessum orðum: „Hveragerði er heimsins besti staður.“
Það var ekki fyrr en 1946 að götunum í þessu nýja hverfi voru gefin nöfn og hlaut Skáldagatan nafnið Frumskógar. Þá voru skáldin Gunnar Benediktsson og Valdís Halldórsdóttir komin í hópinn".
Vefurlistvinir.is (opnast í nýjum flipa)
Kristján frá Djúpalæk bjó í Hveragerði 1950 til 1960 og var þar samtímis nokkrum þeirra skálda sem fyrr eru talin.
Kristján er einn ,,Fjögur(ra) skáld(a) í för með presti", Bolla Gústafssyni, og fjallar um Hveragerðisár sín þar frá bls. 185. Segir þau Unni, konu sína, hafa komið vegna leirbaðanna, en bæði áttu árlanga sjúkrahússlegu að baki.
,,En á þessum árum var Hveragerði enginn leirburðarstaður, heldur eitthvert andríkasta pláss á Íslandi, a.m.k. miðað við fólksfjölda".
Á síðunni:
Vefuris.wikibooks.org (opnast í nýjum flipa)
eru taldir upp 13 listamenn sem bjuggu í Hveragerði á árunum 1940 til ~1964, en auk þeirra segir Jón Óskar, skáld, í Gangstéttir, bls. 214-215, að þar hafi dvalist þeir Hannes Sigfússon og Elías Mar.
Aðrar tilvísanir:
Björn Pálsson, ,,Hveragerði og upphaf mannvistar þar." Árnesingur IV, rit sögufélags Árnesinga, 1966.
Guðmudur Jakobsson, Mannlíf undir Kömbum. Viðtöl við Hvergerðinga, 1984.
Gunnar Benediktsson, Að leikslokum. 1978.
Pétur Hafstein Lárusson, Hveragerðisskáldin, 1933 - 1974. Útg. 2004.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)