Árið 1942

t.d.

5 vísur frá árinu 1942
  1. 1942Lag: Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

    Íhalds munu í gráðugt gin

    gæsir steiktar fljúga
    Óli á Hermann ei að vin
    ,,eiða rjúfa, ljúga”.

    Fólksflutningar til þéttbýlis í vinnu fyrir herinn, gera atkvæðajöfnun milli þétt- og dreifbýlis áhugaverða fyrir verkalýðsflokkana sem sækja fylgi á mölina. Þá verður ,,eiðrofið”, þegar Alþýðuflokkur semur nýtt…

    Hlusta
    GæsHermann Jónasson, forætisráðherraÓlafur Thors, alþm. síðar forsætisrh.+3
  2. 1942Lag: 1 lítill, 2 litlir, 3 litlir fingur

    Á ríkisstjórn ei ræður bóla

    ráðherranna- situr stóla
    utanþingsstjórn, Coca-cola,
    kennd við Villa og Björn, son Óla.
    1 erindi til viðbótar

    Tók þingið 2 ár að koma saman stjórn. Ríkisstjóri, Sveini Björnsson skipaði utanþingsstjórn þegar þingmönnum hafði ekki tekist að mynda stjórn þá er rúmur mánuður var liðinn frá kosningum. Voru þó margir möguleikar í…

    Hlusta
    Utanþingsstjórnin 1942-1944Krýsuvíkurvegur til Þorlákshafnar / Hafnarfj.+3
  3. 1942Lag: Yfir kaldan eyðisand

    Bændur vantar vinnumenn

    vilja fáar raka
    hemst og illa holdið enn
    hermenn skortir maka.

    Fólksflótti til þéttbýlis í vinnu fyrir herinn. Sr. Sigurjón Einarsson, Undir hamrastáli, 182: ,,Fólk sigldi suður ...sem fram að þessu höfðu kannski verið hjú á sama bænum árum saman.…

    Hlusta
    ÆlovjúRifjað
  4. 1942Lag: Þýskt þjóðlag,

    Greifafrúna hún María Markan

    á Metropolitan söng
    klóna ætti úr henni barkann,
    ennis- holur og -göng
    óperuvegferðin þykir þröng
    þar er samkeppnin hörð og ströng
    María, María, María, Markan
    á Metropolitan söng

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands: ,,7. janúar söng María Markan hlutverk greifafrúarinnar í Brúðkaupi Fígarós í Metropolitanóperunni í New York. Hún varð þar með fyrsti Íslendingurinn sem kom fram í aðalhlutverki í þessu…

    Hlusta
    Metropolitan óperan NYMaría Markan
  5. 1942Lag: Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

    Úrkynjun nýlista Hrifla sig hélt

    á háttvirtu Alþingi sanna
    við klessur og rímleysur fékk sig ei fellt
    og fegnastur skyldi slíkt banna.

    Sllóðin https://vimeo.com/10012435 (smella þarf á myndina sem birtist) fjallar ítarlega um Háðungarsýninguna sem Jónas Jónsson frá Hriflu setti upp í Alþingishúsinu á verkum ungra listamanna. Þeir sóttu hugmyndir til…

    Hlusta
    Jónas Jónsson frá HrifluÞorgeirsboli, málverk Jóns Stefánssonar, var á sýningunniÞorsteinn Ö. Stephensen sem Björn í Brekkukoti í kvikmyndinni Brekkukotsannáll