Kynvillingur kærður var
Lag Senn er komið sólarlag - Bj.Þ. 865
Kynvillingur kærður varkominn er í Grjótiðfjóra mánuði fær hann þarfékk ei hamið dótið.
Á kyni villtist Kristmann eikommúnisti áðurvið öli sagði ekki neiæ af konum dáður.
Heimildir og samhengi
Karlmaður, Guðmundur Sigurðsson, hjúkrunarmaður á Litla-KLeppi, sat 4 af 8 mánuðum tildæmdum fyrir brot á lögum frá 1869 um samræði gegn náttúrulegu eðli.
Vefursamtokin78.is (opnast í nýjum flipa)
Verðandi rithöfundur, Kristmann Guðmundsson, vitnaði gegn félaga sínum í Félagi ungra kommúnista, Guðmundi Sigurðssyni, enda hafði Guðmundur látið reka Kristmann úr stúku fyrir að brjóta bindindisheitið. Féll Kristmann þá í ónáð hjá kommum fyrir að vitna fyrir auðvaldsdómstól gegn kommúnista og fyrir að selja Morgunblaðinu ljóð. Flutti Kristmann því til Noregs og varð þar kunnur rithöfundur.
Öldin okkar; Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 239. Roðinn í austri, bls. 294.
Bók Jónasar Kristjánssonar, Söguþjóðin, bls. 155:
,,Ein mesta svívirðing sem unnt var að sýna nokkrum manni í fornöld var að bregða honum um samkynhneygð, en slíkt kallaðist að vera argur eða ragur".
Sama bók, bls. 200-201:
,,Sá sem fyrstur boðaði kristna trú á Íslandi (981-986) var kristinn víkingur, Þorvaldur víðförli Koðránsson frá Stóru-Giljá í Þingi. ... Í Saxlandi suður fann Þorvaldur biskup þann er Friðrekur hét. Þorvaldur bað biskup að fara með sér til Íslands og skíra föður sinn og móður ... og veitti biskup honum það. ... Nú tóku heiðnir menn til bragðs að beita hinu beitta vopni, níðvísunni:
Hefir börn borið
biskup níu
þeira er allra
Þorvaldur faðir.
Vefurlistvinir.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)