Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1923
1923
1923

Fyrsta ganga 1. maí:

Hljóðbrot0:00

Lag Hér er ekkert hrafnaþing

Lag Eigi stjörnum ofar - SB 367

FFyrsta ganga 1. maí:,,flibbar” kjörin rýra.Kommúnista úr frosti fræfara brátt að spíra.

Enga presta - poka -pennum skulum lokaallir út að mokaán þess doka við.

Glúmur Gylfason · 1923

Heimildir og samhengi

Einar Olgeirsson: Kraftaverk einnar kynslóðar, Mál og menning 1983, bls. 56: ,,...söfnuðust göngumenn saman við Bárubúð í Vonarstræti og gengu síðan upp að grunni hins væntanlega Alþýðuhúss við Hverfisgötu, þar sem fundur var haldinn. Atvinnurekendur voru vitaskuld ekki ýkja hrifnir af þessu tiltæki verkalýðsins, og blað þeirra, Morgunblaðið, var hið fúlasta”.

Einar og fleiri skoðanabræður hans höfðu hlotið menntun í Þýskalandi, m.a. vegna gengisfalls þýska marksins. Þar blómstraði sósíalisminn í mikilli þjóðfélagsólgu á millistríðsárunum, sem íslenskir námsmenn fluttu með sér hingað - Tilvísun: Der Spiegel Geschichte 1/2020.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Skafti Ingimarsson: ,Saga kommúnista á Íslandi ... bls. 322: ,,Það að taka pólitíska afstöðu með því að fara í kröfugöngu gat haft í för með sér atvinnumissi. ...Það gat bæði misst vinnuna ef það gekk í Kommúnistaflokkinn og verið rekið úr Flokknum ef það lenti í andstöðu við stefnumál hans".

Karl Sigurbjörnsson, Í helgum steini, bls. 373: ,,Hugmyndafræðin um að alræði öreiganna skyldi innleiða hið fullkomna samfélag á jörðu var ekkert nema trúarbrögð og sem leiddi til ólýsanlegra hörmunga. Sama er að segja um hugmyndir Hitlers um yfirburði þýsks þjóðernis og menningar. Úr þessum hugmyndum voru smíðaðar djöfullegar drápsvélar sem tortímdu milljónum með kerfisbundum hætti".

Karl Sigurbjörnsson, Skrifað í sand, bls. 30: Ég man þegar einhver strákur spurði mig: Hvað vinnur hann pabbi þinn?" og ég svaraði: ,,Ekkert, hann er prófessor!"

Vinnudeila sjómanna á togurum við útvegsmenn, slógust við Reykjavíkurhöfn, Blöndahlsslagurinn.
Skv. Æviminningum Þórarins Olgeirssonar, skipstjóra, útgerðarmanns og ræðismanns, á bls. 60, hefur botnvörpungurinn Mars skilað eigendum andvirði skipsins á rúmum tveimur árum. ,,Slegist" var um hásetastöður á togurum enda miklu betri laun í boði fyrir verkamenn en við nokkurt annað starf.
Samvkæmt Þórarni voru þess og dæmi að bændur fengju vinnumenn sína ráðna háseta á skútur og togara og hirtu laun þeirra eftir aldagamalli hefð. Þannig var þéttbýlið bændum ekki með öllu í óhag þrátt fyrir allt.

Guðjón Friðriksson, Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar II, bls. 66:
,,Stéttaandstæður voru töluverðar á millistríðsárunum. Verkafólk bjó almennt við mjög bág kjör, en allstór hópur auðmanna hafði meira en nóg á milli handanna ... millistéttin, svo sem skrifstofu- og verslunarmenn klæddist daglega með hvítt um hálsinn".
Vélar og tæki lítt farin að létta mönnum störfin og þeir sem vinna ekki erfiðisvinnu teljast ekki til ,,vinnandi stétta” (1934) en taldir afætur og nefndir hvítflibbar.

Fimm konur, Setberg 1962, bls. 40: Kona verkamanns á Eyrarbakka sagði við Elísabet Jónsdóttur (1878-1969), sem var gift kennara: ,,Það er sá munur á vinnu mannsins míns og mannsins þíns, að minn maður vinnur fyrir kaupinu sínu”.
Verslunarmenn höfðu um aldir talist yfirstétt, en nú óþarfar afætur, þegar pantað skyldi til ársins, sem var stefna Jónasar og Framsóknar frá 1916og hafði verið 1870með Gránu og fleiri búðarlausum pöntunarsamlögum á þeim tíma. Alþýðuflokkur vildi á þessum tíma þjóðnýta verslun eins og flestan atvinnurekstur.

Guðmundur Hálfdánarson: Heimtur, 162: ,,Þeir sem framleiddu efnislegar vörur stunduðu nytsamlega framleiðslu, en þeir sem unnu við verslun eða aðra þjónustu stunduðu ónytsamlega iðju”. Sbr. nafn ríkisstjórnarinnar 1934.

Karl Marx, Das Kapital, III. bindi, 20. kapítuli, um iðnaðarkapítal og kaupmannakapítal. Þar segir, að kaupmenn séu hindrun á vegi framfara og sníkjudýr á sveitasamfélaginu ef þeir þjóni ekki iðnaðinum. Stefna kommúnista (Komintern Kommunistische Internationale), var að koma á einokunarverslun ríkisins. Íslendingar höfðu nokkra reynslu af einokunarverslun.
Sbr. Ritsafn Sagnfræðistofnunar 21, 1987, Gísli Gunnarsson, bls. 16; Arnór Hanníbalsson, Moskvulínan.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Í helgum steini, bls. 373, rifjar Karl Sigurbjörnsson upp, að Karl Marx sagði fólk ekki fá kraft til að rísa upp gegn aðstæðum sínum fyrr en trúnni væri útrýmt. ,,Þessari uppskrift fylgdi svo Lenin af mikilli einurð og hvatti til þess að öllum kirkjum yrði eytt og allir prestar drepnir. Stalín fylgdi því eftir af öllu afli".

Der Spiegel - Gesichte, nr. 3, 2017, bls. 34:
,,Þetta voru tímar öfgafullra hugmyndafræða þar sem bilið milli vinstra- og hægra ofstækis var styttra en nú kann að virðast".

Úr bók Ingimars Sveinssonar, Djúpivogur, bls. 69: ,,Kauptíð á Íslandi stendur í eina viku og þá koma íbúar á verslunarstað til að skipta afurðum sínum ...fyrir verslunarvarning af ýmsu tagi. Hana ber upp á tvo tíma ársins, þann fyrri í júní, þann síðari í september”.

Jón Óskar: Páfinn situr enn í Róm, bls. 45: ,,Kannski var á þessum tíma eðlilegt að hrífast af fávíslegri mikilmennsku verkamannsins, sem allt í einu þykist svo frjáls, að hann grípur pennann úr hendi rithöfundarins og burstann úr hendi málarans: ríkið, það er ég, listin, það er ég. Í rauninni var verið að setja helsi á listina”.

Sigurður Hróarsson, ,,Eina jörð veit ég eystra", bls. 94: ,,...í ríki Stalíns var á þessum árum takmarkað frelsi og óréttlæti endanlega að drepa alla bókmenntasköpurn".
Sjá enn fremur1937 um viðskipti D. Shostakovitsj við Stalín og Flokkinn.

Þegar Ólafur Kárason, Ljósvíkingur, lagði af stað til höfuðborgarinnar þar sem hann skyldi afplána fangelsisdóm dubbaði eiginkonan, Jarþrúður Jónsdóttir, hann upp sem heldrimann með flibba áföstum húmbúkki, þ.e. gúmmíbrjóst nema hvað Ólafs var úr pappír. Sjá Fegurð himinsins eftir Halldór Laxness, 12. kafla.
HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Kór Rauða hersins syngur Nallann: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Atvinnurekendur syngja ,,NALLANN":
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þetta ár, 1923, byrjhaði Adolf Hitler að afplána eins árs dóm fyrir misheppnað valdarán sem kostaði 20 mannslíf.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Ef ég væri ríkur:

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1922Í fyrsta skipti kratar klofna1924 →Kynvillingur kærður var