Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1924
1924
1924

Kommar auri ata

KKommar auri ataíhaldshækju, krata,eymd og kröm sér kjósa' efkrefst þess félagi Jósef.

Ungkommum sýnist ekkert tommi- átök við sósíalista -Ólafur Friðriks sé enginn kommiúthýst skal hið fyrsta.

Glúmur Gylfason · 1924

Heimildir og samhengi

Hendrik Ottósson, Vegamót og vopnagnýr, bls. 89
segir frá því, þegar höfundur á síldarsöluferð í Kaupmannahöfn seldi frekar Rússum beint sem versla vildu við hann, kommúnistann, þótt honum byðist svimandi há umboðsþóknun fyrir að selja þeim í gegnum Svía, en kommúnistar hirtu löngum minna um eigin hag en Rússa. Sóttu ekki Alþingishátíðina 1930, en gáfu rússneskum bændum dráttarvél af því tilefni, sbr. ,,Óskalandið, Sovét-Ísland" - öreigar allra landa sameinist. En gerðust tíu árum síðar þjóðernissinnar að fyrirlagi Stalíns, vegna þess að alþýðulýðveldi gæti ekki haft konung. Í bók Laxness, Húsi skáldsins, heita kommúnistar ættjarðarleysingjar í munni Sannra Íslendinga.

Í heimsstyrjöldinni 1914-1918 hafði verið barist af þjóðernismetnaði sem kostaði 10 milljónir manna lífið og varð til þess að þeir sem litu vonaraugum til byltingar Bolsévika sögðu skilið hver við sinn þjóðarleiðtoga og þjóðarmetnað, en stefndu á vopnaða byltingu heima og litu á Rússland sem ættjörð sína. Íslenskir kommúnistar engin undantekning. Þannig stóðu mál kommúnista í Evrópu þar til Stalín sá af snilli sinni 1934, að virkja mætti þjóðerniskenndina sér í vil og með þjóðernishyggju að vopni unnu kommúnistar 3 þingsæti 1937.
Sjá 1937og 1930, m.a. þessa skoðun Þórbergs Þórðarsonar þar, þ.e. 5 árum áður en Stalín breytti henni og gildir einnig Halldór Kiljan Laxness og Jóhannes úr Kötlum. á þessum árum.

Hendrik Ottósson, Vegamót og vopnagnýr, bls. 65:
Landsþing ASÍ haldið 1924. Félag ungra kommúnista sótti um ingöngu (sem slíkt). Var mikil harðneskja í báðum og kom til lítilsháttar handalögmáls. Inntökubeiðninni var vísað frá.
Bls. 66: Þingið ályktaði að blað Ungra kommúnista, Rauði fáninn, væri hættulegt Alýðuflokknum og skoraði á stjórnina að víkja úr ASÍ þeim félögum sem hlut ættu að máli.
Bls. 68: Þannig var mál með vexti, að deilur höfðu magnast mjög innan vistri armsins (Jafnaðarmannafélags Reykjavíkur, sjá 1922) sem taldist út á við flokksbrot kommúnista.
,,Má með sanni segja að nú hafi verið barist á mörgum vígstöðvum í senn. Í Fyrsta lagi var Alþýðuflokkurinn allur í baráttu við borgaraflokkana. ...Í öðru lagi átti vinstri armurinn í höggi við sosíaldemokratana. Í þriðja lagi vorum við sjálfir (Ungir kommúnistar) tví- og þrískiptir. Lítið betra var ástandið hjá sosíaldemokrötunum".
Bls. 69: Eftir deilur okkar vinstrimanna ákváðum við að leggja málið í gerð Norðmannsins Vegheim (á fundum heima hjá Ólafi Friðrikssyni, en Vegheim var frá Noregi sendur til að reyna að sætta visntrimenn á Íslandi).
Bls. 72: ,,Þegar fram á sumar kom, 1925, var samvinnan orðin bágborin, ...allir fundir ónýttust af rifrildi. Eitt sinn varð svo mikil rimma, að við yfirgáfum fundarstaðinn og héldum heim til Brynjólfs (Bjarnasonar) á Vesturgötu 5".
Bls. 74: ,,Ársæll (Sigurðsson, ungur kommúnisti) hafði verið kosinn ritari Jafnaðarmannafélagsins ...Vildi hann hreinsa til í því og og strika út alla menn sem hengu þar á félagaskrá. Varð úr þessu sundurþykkja ný með honum og Ólafi (Friðrikssyni). Ólafur nefndi sig alltaf kommúnista, en okkur stjórnleysingja".

Roðinn í austri: Á sambndsþingi ASÍ í nóvember 1924 voru báðir armar Alþýðuflokksins klofnir (bls. 324).
Til vinstri voru m.a. Jafnaðarmannafélagið, form. Ólafur Friðriksson, Áhugafélag alþýðunnar, Fræðslufélag kommúnista og Félag ungra kommúnista, en fyrir hönd þess sendi Ársæll Sigurðsson til Rússlands staðfestingu á að félagið lyti Moskvu, þ.e., Komintern. Sagði þar, (bls. 326) ,,að þó væri ákveðin andstaða til staðar frá Ólafi Friðrikssyni, sem kallaði sig kommúnista, en væri það ekki".

Bls. 330: ,,helstu foringjarnir ...svo uppteknir af innbyrðis deilum og erjum við sósíaldemókrata að þeir vanræktu almennt félagsstarf".

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Íhaldsflokkurinnj stofnaður 1924:
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1924

  • Kynvillingur kærður var
  • Blöðin ,,tóku að mögla og manga"
  • Ennþá vald í vöðvum býr
← 1924Blöðin ,,tóku að mögla og manga"1924 →Ennþá vald í vöðvum býr