Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1920
1920
1920

Bússu aldrei Einar dró

Hljóðbrot0:00

Lag Mér um hug og hjarta nú

BBússu aldrei Einar dróupp úr sínum vasabúntum seðla á borðið slóum borgun réð ei fjasaímyndunaraflið nógút gaf fjölda blaðalengst í Höfn og London bjólét á súðum vaða.

Glúmur Gylfason · 1920

Heimildir og samhengi

Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson III, 31, 34, 58:
,,Í maíbyrjun siglir Einar ... klefafélagi er Sveinbjörn Árnason frá Kothúsum í Garði ... sagðist svo frá:
,,Þegar við höfðum notið veitinga (í Edinborg) tók ég upp budduna og ætlaði að fara að borga fyrir mig".
Þá segir Einar: ,,Láttu engan sjá þig með þessa tuðru, þú átt að taka lausa peninga upp úr vösum þínum". Um leið tekur Einar peninga upp úr vösum sínum, fleygir þeim á borðið og borgaði fyrir okkur alla.
Síðan hef ég aldrei átt buddu". Sjá og I. bindi, 224.

Einar ritstýrði og/eða átti tvívegis dagblöð, tvö vikublöð og ráðgerði önnur; átti glæsihús í Reykjavík, Höfða, og önnur í Kaupmannahöfn og í Lundúnum og nágrenni og var langdvölum á dýrustu hótelum og hélt stórum íbúðum þar á meðan hann ferðaðist til enn annarra landa uns systir hans mátti skjóta skjólshúsi yfir hann í 15 fm. kytru í bakhúsi við Grundarstíg (1927).
Fjármálaráðgjöf beggja feðganna, Benedikts og Einars, varð til þess að vellauðugir menn urðu öreigar: Einar ríki Stefánsson á Reynistað og Þorvaldur ríki á Þorvaldseyri (sjá 1888) - sbr. fyrrnefnda ævisögu.
Spila:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1920

  • Matthías hafði sjötta sans
← 1920Matthías hafði sjötta sans1921 →Vökulög og verkfall frá