Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1920
1920
1920

Matthías hafði sjötta sans

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

MMatthías hafði sjötta sanser sigldi´á óðar djúpi.Vestanpóstur og hestur hanshrapa úr Bjarnarnúpi.Fellur verðið veðrum áveður ógnar sprettu.Hæstiréttur hvergi máhalla máli réttu.

(veðrum = hrútum)

Glúmur Gylfason · 1920

Heimildir og samhengi

+ Séra Matthías Jochumsson f. 1835, trúar- og þjóðskáld. Hann kynntist únítörum í Englandi sem styrktu hann til únítaratrúboðs hérlendis. Keypti þá Þjóðólf, en úr trúboði varð ekkert. Lenti þó í trúmálaritdeilum sem m.a. biskup og prestaskólakennarar létu sig varða og var þá vitnað í séra Jón Bjarnason í Kanada: ,,Maðurinn er ekki með sjálfum sér nema þegar hann yrkir”.
Guðfræðideild HÍ sæmdi þó skáldið heiðursdoktorsnafnbót í guðfræði viku fyrir andlátið. Matthías er höfundur Þjóðsöngs Íslendinga - textans:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sumarliði Brandsson, póstur, f. 1883, hrapaði ofan Vébjarnarnúp með hesti sínum er snjóhengja brast í roki og kafaldi 17. des. Núpurinn þverhníptur í sjó fram og um 400 m. hár og lifði hvorugur af.
Fylgdarmaður komst til bæja og fannst póstur og hestur hans eftir að snjóflóð hafði hrifið fjóra leitarmenn úr fjöru út á sjó og drukknuðu þrír en einn barg sér á sundi.

75% verðfall á afurðum bænda. Frosthörkur í mars: -18°C syðra, -26°C nyrðra.
Ævisaga Helgu Sörensdóttur, Jón Sigurðsson, Ystafelli, skráði. Bls. 164: ,,...vorsins 1920 minnist hún eins hins harðasta og snjóþyngsta. Þá var almennt heyleysi í Reykjahverfi ...engin jörð um sauðburðinn. ...Matur sá sem keyptur var harða vorið 1920 var allur með hinu háa dýrtíðarverði fyrra stríðsins. En um haustið, þegar borga skyldi með búsafurðum voru þær fallnar í verði og lítt seljanlegar. Þá mynduðust hinar miklu verslunarskuldir bænda sem fæstir losnuðu við fyrr en með kreppulánunum eftir 1930. ...á fyrri stríðsárunum vöndust menn á meiri eyðslu á erlendum varningi en áður hafði tíðkast".

Hæstiréttur tekur til starfa. Fækkar þá dómsstigum um eitt, verða tvö í stað þriggja áður.
Skv. Sambandslögunum frá 1918 skyldi einn Íslendingur vera dómari í hæstarétti Danmerkur þar til æðsti dómstóll yrði stofnaður í landinu sjálfu. Til þess kom ekki þar sem alþingi samþykkt 6. október 1919 að æðsta dómsvald yrði strax flutt heim.
Vegna fjárskorts lagði stjórnin þegar á öðru ári til að fækka dómurum úr 5 í 3 og skera niður embætti ritarans.
Allt til 1935 voru sífelldar pólitískar deilur um Réttinn með þeirri orðræðu sem þá tíðkaðist.
Einnig var deilt um skipan dómara, en löglærðir menn þóttu snemma flestir vera úr einum og sama stjórnmálaflokki.
Nafnið Hæstiréttur sætti gagnrýni - þótti ekki nógu þjóðlegt - en líkjast Höjesteræt á dönsku, sem þótti illt. Vildu margir hafa ,,æðsti dómstóll” en Jónasi þótti þar vera seilst inn á svið almættisins og fór í smiðju til Njáls og stakk upp á fimmtardómi.

1970 snerist fjölmiðlaumræða í Danmörk um það, hvort 5 milljóna smáþjóð með íbúatölu á við tvær þýskar borgir gæti tryggt öruggt réttarfar - (Glistrupmálið). Voru dómstigin þar samt þrjú.
Íslendingar voru árið 1920 um 92 þúsund og nægðu tvö dómstig með samtals fjórum dómurum.

Í SÖGU, LX-2, 2022, bls. 213 fjallar Björn Reynir Halldórsson um rit Bókmenntafélagsins, HÆSTIRÉTTUR Í HUNDRAÐ ÁR, útg. 2021 og telur að beinar tilvitnanir sýni að rétturinn hafi þjónað þeim tilgangi fyrir Íslendinga að gera þá stolta af því að hafa á ný fengið æðsta dómsvald í hendur. Gerð er grein fyrir þeim tveimur sjónarmiðum að Danir hefðu ekki forsendur til að dæma í íslenskum málum vegna tungunnar og að Íslendingar væru ekki tilbúnir til að taka við æðsta dómsvaldinu.
Mörg dæmi nefnd um að dómskerfið hafi verið notað til að klekkja á andstæðingum án þess að þeir sem með valdið fóru hafi þurft að taka afleiðingum gjörða sinna.

Í bók Jóns Óskars frá 1987 ,,Konur fyrir rétti" er tíunduð mál frá 19. öld þar sem Hæstiréttur Dana linar eða sýknar sakborninga sem íslenskur Landsyfirréttur hafði áður dæmt til þyngstu refsinga í dulsmálum, sem rímar við umsögn Espólíns hér 1832, Saga frá Skagfirðingum II, 119n:

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Grein á forsíðu Fréttablaðsins 11.06.2021: ,,Ríkið ...semur um bætur. Vegna vegna kross- og ættartengsla tveggja Hæstaréttardómara við málsaðila":
Skjalfrettabladid.overcastcdn.com (opnast í nýjum flipa)

Magnús Torfason, alþingis- og sýslumaður gaf út bækling 1943: ,,Yfirgangur hæstaréttar - Bersýnilega rangur dómur". sjá mynd.

Vefurheimildin.is (opnast í nýjum flipa)

Aðrar heimildir og tilvísanir:
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir: Upp á Sigurhæðir, 481-511;
Jóhann Hjaltason: Frá Djúpi og Ströndum, bls. 178;

Afmælisrit Gissurar Bergsteinssonar frá bls. 15.
Öldin okkar; Hannes Pálsson: Vopnaskipti og vinakynni, bls. 65-8; Saga Ísl. XI lýsir verðfallinu; Mbl. 20/12 1920.

Myndir: Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Pósturinn Páll: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

(veðrum = hrútum).

Myndir

Einnig frá árinu 1920

  • Bússu aldrei Einar dró
← 1919Sýnist þýskri senu steli1920 →Bússu aldrei Einar dró