Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1921
1921
1921

Vökulög og verkfall frá

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

VVökulög og verkfall fráað veiðum ekki slugsumþjóðarhagvöxt þakka máþorski, síld og ufsumen óvænt fengum annað þáömurlegt að hugsa' um:kóngur reyndist ekki áíslenskum lokubuxum.

Glúmur Gylfason · 1921

Heimildir og samhengi

Eftir verkfall á Ísafirði:SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)
sett Vökulög sem tryggðu togarahásetum 6 klukkustunda hvíld á sólarhring. Flutningsmaður Jón Baldvinsson. (1938).

Áður: ,,.. á þinginu 1919, flutti Jörundur Brynjólfsson frumvarp um styttingu vinnutíma háseta á botnvörpuskipum ... en hann gat skipt nokkrum dægrum án þess að hvíld væri tekin. ...Var frumvarpið fellt á þinginu þetta árið". (Þór Indriðason: ,,Hannibal Valdimarsson og samtíð hans", bls. 59").
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Eiríkur skipherra Kristófersson: Á stjórnpallinum, bls. 55:
,,Á skútunum voru ...skylduvaktirnar 12 klst. í sólarhring, en flestir stóðu við drátt miklu lengur ef fiskur var undir".

Sigursteinn Steinþórsson, f. 1885 eða 1886, síðast fangavörður Litla-Hrauni, í viðtali við Guðmund Daníelsson, Þjóð í önn, 173:
,,Það þótti lúxus þegar maðiur fékk að sofa 6 tíma á sólarhring eftir nýju lögunum, áður var staðið uppi meðan mannskapurinn hélt höfði".

Viðtal Guðmundar við Þórarin Guðmundsson, f.1893, Finnbogastöðum, þá bónda að Sóvangi við Eyrarbakka um hákarlaveiðar á opnum áttæringi frá Ströndum um 1905: ,,Það var ekkert afdrep að hafa á þessum skipum. Ef veiði var að hafa vöktum við á meðan við gátum haldið okkur vakandi, en þegar hlé varð á fleygði maður sér úrvinda í öllum sjóklæðum ofan á dauða hákarlaskrokkana til þess að sofa. Það var kalt stundum".
Á sjó: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Um hagvöxt á árunum frá 1919 fram til hernáms 1940 skyldi þó varlega talað. Sömuleiðis er hlutur ufsa gerður rímsins vegna meiri en efni standa til. Hann taldist nefnilega tros eins og m.a. skata og keila og mátti sá sem dró eiga.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þór Whitehead, Sovét Ísland, bls. 68: ,,ágreiningur um verkfallsrétt og starfsemi verkalýðsfélaga hafði áður komið upp víða um lönd ...og átti enn eftir að kosta hörð átök og mannslíf, þar á meðal í Svíþjóð 1931".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Klæddur sjóliðsforingjabúningi vígir Kristján X. Elliðaáavirkjun í fyrstu heimsókn þeirra Alexandrínu drottningar.
Sá klæðnaður sætti gagnrýni þá og síðan og hefur, ef marka má Sögu Íslands XI, bls. 295, útg. 2016, ráðið sínu um að kóngi var sögð upp hollusta 1944.
Þar segir: ,,Heimsóknir hans til Íslands voru fjórar, allar skylduheimsóknir, og þar kom hann ávallt fram í einkennisbúningi danska hersins, jafnvel þegar hann setti Alþingi á Þingvöllum 1930. Hér verður að hafa í huga að hann var konungur í ríki sem hafði engan her. Ábendingar um þetta voru árangurslausar".
Þarna verður ekki séð að við séum ennþá, árið 2016, komin yfir klæðnað kóngs.
Á sama tíma fóru sýslumenn varla úr borðalögðum og hnöppum skrýddum einkennisfötum á meðan þeir sváfu.
Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson I, 324: ,,Sýslumaður (EB) er í einkennisbúningi með logagylltum hnöppum hvert sem hann fer”. (Gerist um 1907).

Hér gefur bæði að líta borðalagðan sýslumann og skipherra:
Vefurislandpaafilm.dk (opnast í nýjum flipa)

Til annars brá, 1568, þegar afsettur lm., Ormur Sturluson, gekk fyrir kóng í vaðmálsúlpu sinni, þeirri einu yfirhöfn sem hann þá átti, kominn fótgangandi sem beiningamaður um Noreg. Tók kóngur, Friðrik II., Ormi hið besta og veitti honum lögmannsdæmi að nýju.
Heimild: Espólín. (Sjá 1553 og 1568).

Danir jafn hneykslaðir á Íslendingum: Danskt blað birti mynd af konungsfylgd á Ölfusárbrú með textanum: ,,Svona taka Íslendingar á móti konungi sínum". Myndin var látin tala: hversdagsklæddir menn hölluðu sér að brúarhandriðinu með hendur í vösum og húfur á höfði þegar konungur þeirra reið hjá. (Líkist myndinni frá konungskomunni 1907, sjá þar). (1939, 1942).

Tómas Sæmundsson lét 1832 frá sér fara bækling sem sagði nauðsynlegt að Íslendingar ,,temdu sér betri limaburð og framgöngu. Íslenskir stúdentar sættu aðhlátri danskra skólabræðra við háskólann sakir hjárænulegrar framkomu". Heimild: Aðalgeir Kristjánsson, Hafnarslóð, 269, 270.

Hér sést munurinn á stjórnkænsku Kristjáns X. og Alexanders mikla, sem hafandi yfirtekið Egyptaland og sigrað heri Persa klæddist að þeirra hætti og vann svo hug og hjörtu innfæddra.
En konungsættin danska hefur lært af mistökunum og frá og með Friðriki IX. klæðst þjóðbúningum Færeyinga og Grænlendinga í ferðum þangað enda stendur konungssambandið enn við þau lönd. Og heimsækja nú einnig Ísland strípulaust:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

En Íslendingar tóku upp gyllta hnappa og rendur á einkennisfötum skipstjórnarmanna, löggu, pósta, strætóstjóra og lúðrasveita auk orðuveitinga sama árið og kóngur skyldi vera borgaralega klæddur.
Hvernig kóngur missti hylli Einars skálds Benediktssonar vegna of lausts handabands þeirra við þetta tækifæri skýrir Guðjón Friðriksson í Sögu Einars III, bls. 69 og 252.

Hólmfríður Hjaltason, skrásett af Elínborgu Lárusdóttur, Tvennir tímar, bls. 37:
,,Þá (~1880) voru allir karlmenn í lokubuxum. Á buxum þessum voru skrautlegir hnappar að framan beggja vegna við lokuna ...og voru ýmist úr tini eða kopar”. (!)

Að Íslendingar væru þetta djarfir við Kristján X. má setja í samband við það, að einungis munaði hársbreidd að honum yrði steypt af stóli ári fyrr.
29. mars 1920 setti hann frá völdum þingvalda ríkisstjórn sem Radikale Venstre leiddu (Zahle). Urðu þá fjölmennar mótmælagöngur eftir Strikinu þar sem kóngur var afhrópaður með lýðveldiskröfum, sem Íslendingar tóku þátt í, a.m.k. Pálmi Hannesson, síðar rektor MR, er þar barði niður lögregluþjón með hans eigin kylfu, skv. Æviminningum Sigurðar Thoroddsen, bls. 179.

Kommúnistar höfðu klofið sig úr Sósíalistaflokknum 1919 og reyndar höfðu báðir flokkar hótað allsherjarverkfalli 6. apríl til að krefjast betri kjara. Formaður Sósíalista, Thorvald Stauning, notaði verkfallshótunina í 5 daga viðræðum við kóng og tókst að fá skipaða þingræðislega ríkisstjórn. Kóngur hélt þar með hásætinu, en kommúnistar efndu til verkfallsins á tilsettum tima, en það fór út um þúfur.

Við hernám Danmerkur 1940 gleymdust allar innbyrðis væringar og varð Kristján X. þá sameiningartákn þjóðarinnar og ákaft hylltur á daglegri reið um götur Hafnar og ekki síður eftir að hann datt af baki og fótbrotnaði. Þeim mun sárar tók það Dani að Íslendingar skyldu bregðast honum einmitt á þeirri stundu.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hér gefur að líta Kristján X. í klænaðinum umrædda og hvernig þegnar hans bregðast við.
Vefurtwitter.com (opnast í nýjum flipa)

Il GIORNALE 1.3.2025: ,,Trump, riferiscono un paio di suoi consiglieri, sarebbe stato irritato dal fatto che il leader ucraino non abbia indossato un completo in occasione dell'incontro a Washington. Si tratterebbe di uno dei fattori - "piccolo ma non insignificante" - che avrebbe indispettito il tycoon. A tal proposito pare che il team di The Donald abbia più volte raccomandato agli uomini di Zelensky di vestirsi "in modo rispettoso" e non in tenuta militare come fa di solito."

Þarna segir um fund Zielinskis og Trumps i Hvíta-Húsinu degi fyrr, hafi það farið í taugarnar á Trump að forseti Ukrainu klæddist ekki jakkafötum þrátt fyrir að menn Trumps hafi margoft lagt fyrir fylgdarlið gestsins að þeirra maður klæddi sig virðulega.

Heimildir og tilvísanir:
Der Spiegel, Geschichte 3/2018 bls. 79.
Faðir minn skipstjórinn 1, bls 4, Skuggsjá 1976;
Theódór Friðriksson: Í Verum I - vakað að veiðum;

Skútuskak bls. 284; Skútuöldin V, bls. 95-102;
Vigfús Guðmundsson, Æskudagar, 72; Jón Helgason: Öldin okkar;
Guðmundur G. Hagalín: Virkir dagar I, 51, ævisaga Sæmundar Sæmundssonar.

Hér eru formerkin önnur:
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttDV (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1920Bússu aldrei Einar dró1922 →Nú skal krónan sjá um sig