Nú skal krónan sjá um sig
Lag Tíu litlir negrastrákar
Nú skal krónan sjá um sigsjálf, en ekki Bauninngrunar suma gengissiggeti orðið raunin.
Heimildir og samhengi
Íslensk króna skráð sem sjálfstæð mynteining. Hafði áður fylgt þeirri dönsku.
Slegin íslensk mynt, tíeyringur og tuttugu og fimmeyringur komu í umferð og króna 1925.
Áður var ekki hægt að kaupa eina karamellu af því að hún kostaði hálfan eyri samkvæmt Brekkukotsannál Halldórs Laxness.
Íslensk orðabók Forlagsins 2011 skýrir Bauni: ,,óformlegt, fremur niðrandi um Dani".
Má rekja til þess tíma er baunir voru ekki á borðum hér og Íslendingar litu niður á þá sem lögðu sér jurtir til munns eins og fénaður. Sjá 1758.
H. Laxness, Brekkukotsannáll, bls. 205: ,,Er ekki ósköp lítið um kjötmat í Danmörku herra doktor? Ég hef heyrt sagt að aumíngja fólkið lifi þar mest á káli og baunum".
Ef ég væri ríkur: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Forstjóri SÍS, Hallgrimur Kristinsson ritar í bréfi 27. mars: ,,...spyrð hvort þjóðin sé að fara á höfuðið? ...gjaldeyrisvörur landsins hafa fallið niður í það verð sem var fyrir styrjöldina, en útlend vara í háu verði enn ...ríkustu mennirnir hér í Reykjavík og víðar orðnir fátækir og sumir öreigar ...skuldir ríkissjóðs mjög miklar við útlönd. ...Menn græddu á stríðsárunum, fóru að nota meira fé en áður og uggðu ekki að sér fyrr en í óefni var komið. Alþingi og landsstjórn spiluðu einnig djarft í fjármálum.
En nú er hugsunarhátturinn að breytast. Ný stjórn ...mun reyna að spara ...leggja niður embætti og fleira", (hæstaréttardómara).
Hallgrímur lýsir kreppu.
Kommúnistar sjá óskastöðu og kljúfa Alþýðuflokkinn - sjá hér til hliðar.
Heimild: Páll H. Jónsson, Úr Djúpadal að Arnarhóli, bls. 282.