Axel Juul og Otti Stígs
Lag 10 litlir negrastrákar
Axel Juul og Otti Stígstil Íslands skipum stefnakóngsins vegna, en Kristjáns vígskunna eigi hefna.
500 skyldu fanga Jónog fagnaðarerindið kynnaen hvergi fundu Herrans þjónúr hinu varð ennþá minna.
Eyfirðinga Axel þvingarOtti hina þrúgarvið það urðu Íslendingarallir Lútherstrúar.
Heimildir og samhengi
Við komu tveggja herskipa var réttur settur á Oddeyri 15. júní1551 og þeir þrír Hólafeðgar dæmdir til dauða fyrir landráð, en herra Jón hafði kært Kristján III. fyrir Karli V. keisara og beðið um hernaðaraðstoð og þar áður óhlýðnast utanstefnu kóngs.
Næsta dag, 16. júní 1551, samþykkti prestastefna á sama stað kirkjuskipan Kristjáns III. að viðstöddum knektum, svo sem verið hafði á Þingvöllum 1541. (Ýmsar heimildir).
Skarðsárannáll, I, 126:
,,Sendi kong Christian eitt orlogsskip og á Axel Juul ...og Otta Stígsson með eitt skip fyrir vestan. Þeir höfðu 500 menn með sér, og var bífalað að fanga biskup Jón og setja einn annan biskup þar inn, sem framfylgja vildi þeirri ordinatíu sem kóngur hafði látið til landsins senda."
Dönsku sjóliðsforingjarnir vissu hvorki um aftöku Jóns biskups né afdrif Christians Schriver og höfðu ekki fyrirmæli um hversu við þessum aðstæðum skyldi bregðast. Það beið því næsta árs. Fundust þá ekki vermennirnir en frekar en ekkert voru teknir af lífi bóndinn á Kirkjubóli og vinnumaður(?) hans.
12.500 kýrverð hafði kóngur upp úr krafsinu skv. Birni Þorsteinssyni.
Um hefnd kóngs fyrir Kristján og menn hans: Öldin sextánda, 25, Saga Íslands V, 92.
Segja má að hér hafi orðið það sem fjórum árum síðar varð að samkomulagi í Augsburg: „Cuius regio, eius religio“, þ.e., fursti hvers landshluta í keisaradæminu á meginlandi evrópu skyldi ráða kirkjuskipun þar, þ.e., Augsborgarfriðurinn 1555.