Herraður Ólafur Hjaltason
Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915
Herraður Ólafur Hjaltasontil Hólastaðarað íkon þyrmi veik er vonen vanrækt skaðar
Heimildir og samhengi
Kristján III. tók enga áhættu.
Hann lét fyrst vígja Gissur Einarsson biskup til Skálholts ári eftir að kirkjuskipan hans var samþykkt á alþingi 1541 og nú, 1552, kemur Ólafur Hjaltason (d. 1569) vígður til Hólabiskupsdæmis eftir Oddeyrarsynoduna sem tók við þeirri kirkjuskipan 15. júní 1551. Á þetta bendir Guðbrandur Jónsson í bók sinni: Herra Jón Arason.
Um ætlaða aðferð Ólafs biskups við kaþólskar helgimyndir segir í Biskupasögum Jóns Halldórssonar í Hítardal: ,,..krossa og líkneskjur lét hann taka burt og brjóta þar sem hann ætlaði til vantrúar og áheita mundu höfð vera".
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
,,Byltingarkennd eyðilegging var eitt af einkennum siðaskiptanna. Fjársjóðir klaustranna, helgigripir, myndverk og bækur voru gerð upptæk eða eyðilögð, því allt slíkt flokkaðist undir trúvillu." (Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 51).
Mikil helgi var á Maríumynd í Hofstaðakirkju í Skagafirði. ,,Þangað flykktist fólk á Marúmessu og var myndi þá borin í helgigöngu og áskotnuðust henni miklar gjafir og áheit. Þessa mynd lét Ólafur biskup Hjaltason taka niður og brenna",
Árni Óla: ,,Grúsk", bls. 133.
Í umbrotum siðbreytingarinnar var tíðarandinn öfgafullur sem í öðrum byltingum. Helgir dómar urðu illa séðir og tengdir hjáguðadýrkun. Dæmi um ill örlög þeirra hafa fundist við fornleifagröft.
Dr. Steinunn Kristjánsdóttir segir í Leitinni að klaustrunum, bls. 444-5 frá tveimur dýrlingum, heil. Barböru og heil. Dóróteu, sem höfuðið hafði verið brotið af. Og á bls. 454: ,,Klaustrin áttu alls 93 líkneski eða annars konar helgimyndir af 42 dýrlingum, miðað við úttektir. Öll eru nú glötuð nema tvö af sjálfri Guðsmóðurinni. Raunar hafa fjögur líkneski af þremur dýrlingum fundist í jörðu á klausturstöðunum ".
Vefurutvarpsaga.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurnewsinenglish.no (opnast í nýjum flipa)
Vart má heyra í útförum að Maríudýrkun hafi lagst af á Íslandi:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)