Á því kunnu karlar lag
Lag 10 litlir negrastrákar
Á því kunnu karlar lagkviku fé að lóga-14 drápu í Danska-slagdugðu fleira' en róa.
Sinnar gættu stöðu'og strikistrák að ekki svengi:oní kok á böðli bikibráðnu helltu lengi.
Heimildir og samhengi
Norðlenskir útróðrarmenn drápu eftir áramótin Christian Schriver (Kristján skrifara), ungan son hans, og ~12 sveina hans á Kirkjubóli í Höfnum. Sjá 1551. Christian hafði staðið fyrir aftöku þeirra Hólafeðga í Skálholti.
Skarðsárannáll I, 124 segir að Norðlendingum sem suður reru hafi þótt illt að heyra sunnlenskar konur segja þeim aftur farið að láta óhefnt Jóns Arasonar og sona hans. Tóku sig 30 saman og ferðuðust til Kirkjubóls á Miðnesi. ,,Þar var þá ...Christian skrifari ... þeir tóku hann og aflífuðu og alla hans menn, einnig hans unga son ...alls drápu þeir 14 menn ...og er þetta kallað Danska-slag".
,,Sunnlenskar konur" segir annállinn, og hættir ekki á annað, en almannarómur hefur æ talið hvatninguna komna frá eiganda minna stólsins á myndinni, sem átti arf sinn í hættu. Stærri stólinn gæti Ari bróðir hennar hafa átt telur Sigfús Blöndal, orðabókarhöfundur.
Setbergsannáll IV, 63: ,,þegar þeir norðlensku riðu frá Kirkjubóli eftir hefnd fyrir þá feðga (Jón biskup og syni hans, Ara og Björn) fundu þeir böðulinn sem þá feðga líflét í Skálholti og hét Jón Ólafsson. Hann tóku þeir á Álftanesi og héldu í sundur á honum túlanum og helltu svo ofan í hann heitu blýi*. Með það lét hann líf sitt, en þeir riðu síðan norður”.
*biki segir Grímsstaðaannáll.