Latínunnar liðið skeið
Lag Einu sinni átti ég hest
Latínunnar liðið skeið,,lútherskir nú verið"Marteinn ekki boða beiðbrátt lét prenta kverið.
Af Marteinskveri tvítak tiltveimur kannski of mikiðallra dómar ekki í vilá það fellur rykið.
Heimildir og samhengi
Skálholtsbiskup, Marteinn Einarsson (d. 1576) gefur út handbók með 35 sálmum, prentuð í Kaupmannahöfn. Tvö eintök eru nú til. Sálmarnir eru þýðingar sem fylgja mjög þýska textanum – enda vissara á þessum tímum.
Íslenskir prestar, a.m.k. í Skálholtsstifti, voru sum sé handbókarlausir í 14 ár, þ.e., frá 1541.
Sálmar Marteins þóttu taka fram sálmakveri, Gísla biskups Jónssonar frá 1558. Það innihélt 17 sálma sem hann lét prenta erlendis og kom með til landsins nývígður.
Saga Íslands VII, 185: ,,...tóku landsmenn upp sálmakveðskap, sem var nýjung, en var hið mesta hnoð framan af og horfði til spjalla".
(1555 PPT - Íslenskar bókmenntir 1550-1900 Siðaskipti 1550, bls. 13-18 ... Ísl. æviskrár).
Marteinn var fæddur og uppalinn á Staðastað og prestur þar fyrir og eftir sinn biskupsdóm, en fluttist að lokum til Álftaness á Mýrum, hvar hann dó. Forveri hans á Staðastað 4um öldum fyrr var Ari fróði Þorgilsson. Hans er minnismerkið þar.
Árið 2023 gaf Hið íslenska bókmenntafélag út Gíslakver og umrætt Marteinskver sem fyrra bindi í ,,Sálmabækur 16. aldar".
Í formála, bls. 47, fá sálmar Marteins þessa umsögn:
,,Marteinn Einarsson hefur markað heillaspor í menningu Íslendinga með Handbók sinni og sálmum. Hann var ágætt skáld og þykja þýðingar hans bera af öðrum samtíma sálmaþýðingum (Gísla?). Hann leggur höfuðáherslu á að vera frumtextunum trúr jafnframt því sem hann heldur upphaflegum bragarháttum þar eð sálmalögin voru ekki síður miklivæg boðuninni. Hvort tveggja, sönglögin og margir bragarháttanna, var nýlunda á Íslandi. Marteini var líka í mun að fylgja íslenskum bragarháttum með stuðlum og höfuðstöfum".
Þessi annálsverða útgáfa Bókmenntafélagsins dustar umrætt ryk af Marteinskveri og fjölgar eintökum þess úr tveimur í 200 auk þess sem ritdómurinn er annar og mildari en áður var þótt enn séu ,,allra dómar ekki í vil".
A.m.k. fellir Kristján B. Jónasson (kbjonasson@gmail.com) eftirfarandi dóm í Bændablaðinu 12. mars 2026, bls. 50, þegar hann fjallar um ..þann pempíulega stíl sem skáldakynslóðirnar höfðu fylgt á undan honum" (sr. Hallgrími Péturssyni) ,, ...Af þrælslegum ótta við að fara rangt með voru hroðalegir hortittir valdir til að halda meiningunni réttri og skothent rím góðkennt sem fullgilt, nokkuð sem ekki einu sinni slettusæknustu rapparar samtímans myndu láta sér til hugar koma."
Úr Marteinskveri:
Nr. 30. Viðlag páskasekvensíunnar.
Kristur er risinn upp frá dauðum
og leysti alla veröldina frá nauðum
fyrir það skulum vér vera glað
og lofa vorn Herra í allan stað.
Kirieeleison.
Nr. 35, 3. vers.
Þótt veröldin djöfla væri full
og vildi oss alla gleypa
óttumst vér ekki allt það krull
að öngu verður sú sneypa.
þó heimsins höfðingi hér
harðlig ybbi sér
getur hann gjört ei prett
því Guð hefur dæmt hann rétt,
eitt Guðs orð getur hann bundið.