Enn á lífi yngri-Björn
Enn á lífi yngri-BjörnÓlafar niðji, ríkuæ í vörn við annan Björnog Ögursfrændaklíku.
Heimildir og samhengi
Í bréfi (kæru) sem sm. Árni Gíslason (1569/70/87) ritaði til lm. Eggerts Hannessonar 26. mars þetta ár, 1554, er getið Björns Þorleifssonar - Björnsonar ríka Þorleifssonar og Ólafar Loftsdóttur á Skarði.
Vitað er að hann var á lifi 1548, fæddur fyrir 1480. Af því að sm. Árni nefnir hann ekki látinn í bréfinu ályktar Arnór Sigurjónsson hann á lífi þetta ár, 1554. (Vestfirðingasaga, bls. 464).
Björn Þorleifsson þessi, yngri, bjó á Reykhólum í samnefndri sveit og stóð lengi í baráttu við samarfa Skarðsauðs og erfingja Guðmundar ríka Arasonar á Reykhólum.
Björn Guðnason í Ögri (d. 1518) var hans helsti andstæðingur í þeim deilum. Um þessa atburði er fjallað í bók Arnórs Sigurjónssonar, Vestfirðingasaga.
Skáldsaga Björns Th. Björnssonar, Virkisvetur á Reykhólum byggir á deilum Þorleifs Björnssonar, föður okkar Björns, við Andrés son Guðmundar ríka Arasonar, fyrrnefnds.