Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1556
1556
1556

Áætlun kóngsins er kemur í ljós

Hljóðbrot0:00

Lag Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

ÁÁætlun kóngsins er kemur í ljóskann honum Marteinn þá lítið hrós.Oddur, sem sagt er að flýði í fjósfeigðin að sótti hjá Laxá í Kjós.

Glúmur Gylfason · 1556

Heimildir og samhengi

Marteinn biskup Einarsson rægður við kóng og segir af sér og hverfur á ný til síns fyrra kalls, Staðastaðar á Snæfellsnesi er hann sér fram á að Stóllinn verði sviptur útvegsjörðum sínum á innnesjum Suðvestanlands.
Höfuðsmaður kemur þeirri skipan á, sem Marteinn biskup hafði komið í veg fyrir 1555, að biskupstíund rynni öll til kóngs. Á þeim sama fundi hirðstjóra og valdsmanna var sú skipan ákveðin að prestum skyldi stefnt fyrir sýslumenn / lögmenn og afnumið hið forna dómsvald kirkjunnar. Gegn þessu var beint Vælugerðisdómi Brynjólfs biskups 1645. (Tilvísun: Einar Laxness, Íslands saga I, 65; Saga Biskupsstólanna, bls. 51).
Vigfús Guðmundsson, Breiðabólstaður í Fljótshlíð, bls. 34:
,,En svo var hann (Marteinn biskup) laus við metorða- og eigingirni, að hann sagði heldur af sér biskupsembættinu á besta aldri heldur en að láta taka úr sínum höndum notadrýgstu tekjur stólsins: skreiðarlandskuldirnar. Gerðist hann eftir það um mörg ár prestur á afskekktu brauði, Staðastað".

Ágúst Sigurðsson, Forn frægðarsetur, lV, 147: ,,Það var reisn yfir Skálholtsbiskupinum, sem söðlaði hest sinn og reið vestur að Staðarstað, hiklaus og einbeittur, í mótmælaskyni við þau firn lútherskrar kirkjuskipunar, að kirkjueignir rynni til konungs. Kirkjusetrin, sem enn voru bændagarðar við siðaskipti, sluppu og voru áfram innlend kirkjueign að öðru en kirkjuhlutanum ... það var við hæfi, að hinn eini Skálholtsbiskup sem sagði stólnum af sér og gerðist prestur af nýju, skyldi eiga ævikvöldið á bændakirkjusetrinu á Álftanesi."

Saga Íslands VI getur þess til í kaflanum um Martein, að kóngur hafi gefið Marteini (og þeim bræðrum?) nokkra sök á löglausri aftöku Jóns biskups Arasonar, sem aftur hafi valdið aðförinni að Kristjáni skrifara, sem setti kóng í vanda gagnvart löndum Kristjáns, Hamborgurum.

Byltingin át börnin sín: Daði í Snóksdal féll í ónáð, m.a. vegna kvennamála.
Marteinn sagði af sér - eða látinn gera það - og bróðir hans, Gleraugna-Pétur Einarsson, missti umboð konungseigna 1547 sem hann hafði hlotið 1542. (Sjá 1565).
Lm. Oddur Gottskálksson, sem þýddi Nýja-Testamentið, velktist í Laxá í Kjós, eftir að hestur hans hrasaði, og lést í kjölfarið. Fitjaannáll segir ,,á Norðlingavaði fyrir austan Möðruvelli".

Myndir

← 1555Latínunnar liðið skeið1557 →,,Réttast", sagði skirjan: ,,skera