Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1550
1550
1550

Hann oss um það telur trú

Lag Eg eri jólamaðurin, Hans J. Höjgaard

HHann oss um það telur trúog trúir því sjálfur kannskiað lykla himins og heljar núhafi' h'ann, kóngurinn danski.

Glúmur Gylfason · 1550

Heimildir og samhengi

Í miðaldakaþólsku styttu góðverk, kárínur og bænir vist í hreinsunareldinum, en ríkir fengu og stytt dvölina þar með því að gefa kirkju og fátækum og gerðu það oft rausnarlega á banasæng sem túlkun á Markús 10, 21b.
Á síðustu öld kaþólsku urðu biskupar hvað fengsælastir, en þeir – “frjálsræðishetjurnar” - voru tíundarskyldir páfa auk annarra framlega til hans svo sem “nagla” í Péturskirkjuna, þ.e., fjárframlag til smíði hennar sem greitt var af hverjum vinnandi manni í stiftinu og heimild er um frá 1525. Kom það enda Kristjáni III. á óvart hve lítið fémætt reyndist á stólunum þegar lét greipar sópa, og sendi þá mann, til að leita betur. (Saga Ísl.VI.,90).
Börn Þorsteinsson: Ný Íslandssaga, 191: "Kirkjan átti um siða-skipti 1/3 allra fasteigna ...var þjóðveldið úr sögunni þegar þeim áfanga var náð ...voru biskupar boðendur þeirrar hug-myndafræði sem konungs- og kirkjuvald hvíldi á og bæði viljandi og óviljandi grófu þeir undan þjóðveldinu".
Bls. 202: "Um síðakipti var rúmlega helmingur allra fasteigna í Hólabiskupskæmis í höndum kirkjunnar". Tekjur af þeim ~1.650 kýrverð á ári skattfrjálst að mestu og aflað að hluta með því að lofa himaríkisvist og styttri dvöl í hreinsunareldinum. Páfi tók feginn við sínum hluta teknanna, þeim sem mölur og ryð eyða. Kannast enda ekki sá kaþólski Guðbrandur Jónsson í ritinu Herra Jón Arason, árið1950, við þjóðhetjuímyndina sem í sjálfstæðisbaráttunni var dregin upp af Jóni Arasyni.
Doktorsritgerð Láru Magnúsardóttur, bls. 453, segir Chr. III. með Ríparartikulum 1542 hnekkja dómsvaldi biskups yfir þeim málaflokki, sem hét áður stórskriftamál. Kóngur gerist páfi og færi allt dómsvald til veraldlegra dómara.
Auði vildu ríkir halda í ættum og keyptu í kaþólsku leyfisbréf til að giftast ættingjum en nú seldi kóngur slík leyfi og voru "bestu bændur" svo íhaldssamir við samningu Stóradóms að þeir höfnuðu dönsku reglunni sem leyfði giftingu í 3. lið og varð hún þá kóngi hér að féþúfu strax og hjónaefni voru skyld í 3. og 4. lið. (Sjá Grímsstaðannál III, 644).
Einar Laxness: Íslandssaga A-Ö um sakeyri: “Upp úr siðaskiptum rann allur skeyrir til konungs og umboðsmanna enda missti kirkjan dómsvald það sem hún hafði áður haft”.
Ísl. Fbs.xi 344: “1.765 persónur sektaðar fyrir brot gegn Stóradómi á tíu árum: 1641-50”.
Sakeyrir gekk til sýslu- höfuðsmanns og kóngs í jöfnum hlutföllum skv. rannsókn Þorgeirs Rúnars Kjartanssonar.
Um auðsöfnun síðustu kaþólsku biskupana, sjá og Vestfirðingasögu Arnórs Sigurjónssonar og bók Guðbrand Jónssonar: Herra Jón Arason.

Málverkið er af Chr. IV., sonarsyni Friðriks að taka við umboði sínu frá kerúb.

Myndir

Einnig frá árinu 1550

  • Sýtti ei Ari, en sjá
  • Kóngur páfi orðinn er
  • Með bjórglas einn við bar ég sit
  • Yfirlit 16. aldar A
  • 16.öld - yfirlit B framhald
← 1550Kóngur páfi orðinn er1550 →Með bjórglas einn við bar ég sit