Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1774
1774
1774

Er Viðeyjarkirkja kom upp dýr

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

EEr Viðeyjarkirkja kom upp dýrkóngur í búð má púlaog hvergi finnur heilar brýrí höfuðbókum SkúlaStofan þúsund kostar kýrklerkssonar frá MúlaHákon gamli í gröf sér snýr:,,Gizzur! Höggðu Skúla".

Glúmur Gylfason · 1774

Heimildir og samhengi

Konungsverslunin síðari o. fl.

Wikipedia:
,,Viðeyjarkirkja er kirkjaWikipedia (opnast í nýjum flipa) í ViðeyWikipedia (opnast í nýjum flipa) við ReykjavíkWikipedia (opnast í nýjum flipa). Kirkjan var hlaðin úr steini á árunum 1767Wikipedia (opnast í nýjum flipa) til 1774Wikipedia (opnast í nýjum flipa) og var að einhverju leyti notast við grjót sem gengið hafði af þegar Viðeyjarstofa var reist. Kirkjan var vígð árið 1774Wikipedia (opnast í nýjum flipa) og er næstelsta steinkirkja landsins".

Kóngur keypti öll hlutabréf Almenna verslunarfélagsins 16. maí (sjá 1773) og þar með Innréttingarnar og rak Konungsverslunina síðari t.o.m. 1787.

Stam. Thodal metur sjóðþurrð hjá Skúla 1.600 rd. (1792).

Viðeyjarstofa, aðsetur Skúla sem fógeta, reis 1754. Kostaði húsið skv. Öldinni átjándu um 4.000 rd., þ.e. um 1.000 kýrverð, en önnur heimild nefnir 666 kýrverð. Hannes biskup Finnsson segir 7000 rd. í bréfi til stjórnarinnar, þrgar húm bauð honum 1.200 rd. fjárveitingu til embættisbústaðar.
Sr. Magnús Einarsson, lést þegar sonur hans, Skúli, var 17 ára og giftist móðirin, Oddný Jónsdóttir, þá prf. Þorleifi Skaptasyni, Múla í Aðaldal (sjá 1735), sem kenndi Skúla til stúdentsprófs.
Í tilvikum átti Skúli í handalögmálum við kaupmenn og / eða þjóna þeirra og ekki ætíð allsgáður. Ef múgamenn hefðu reynt eitthvað slíkt þá hefðu þeir fengið nokkur á bakið. Þeir voru hýddir fyrir það eitt að segja sannleikann um prest eða kæra kaupmann með réttu. Sýslumenn voru þar ,,trúir í sinni stétt”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hér sem jafnan frá 1740 til 1793 stóð Skúli alltaf jafn ósnertanlegur gagnvart kóngum og stjórn, hvort sem það var í fjár-, kvenna- eða slagsmálum.
Auk alls þessa hafði stjórnin / kóngur, þegar hér var komið, lagt um 70 þúsund rd. til Innréttinganna.
Ólíklegt að Hákon gamli hafi haft nokkuð slíkt í hyggju 500 árum fyrr auk þess sem nafnið Skúli var ekki í háum metum hjá honum, og fyrr hafði Hákon sagt Gizzuri jarli fyrir slíkum verkum.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Í Viðey lýsir friðarsúla sem frú Yoko Ono gaf 9. október 2007 til að heiðra minningu látins eiginmanns.
Vefuris-is.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

Vefures-la.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1774

  • Barna heyrði gala görn
← 1773Almenna mátu allt of lágt1774 →Barna heyrði gala görn