Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kann

Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kannkneyfti og drjúgt af Mímiá latínu útlagt hefur hannHallgrímssálma með rími.

B gerð bíður staðfestingar:

Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kannkneyft hefur drjúgt af Mími:á latínu útlagði Hallgrím hannmeð höuðstöfum og rími.

Glúmur Gylfason · 1731

Heimildir og samhengi

Séra Kolbeinn Þorsteinsson, lengst prestur í Miðdal f. 1731, d. 1783 af holdsveiki.
Eftirffarandi bíður frekari athugunar.)

Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám: ,, ...tekinn í Skálhotsskóla 1746, stúdent 1750 með ágætum vitninburði ... fékk Miðdal 1765 og hélt til æviloka, varð holdsveikur síðustu árin. Finnur biskup segir 1779 að hann sé gáfumaður, skarpvitur og iðjusamur. Hann var og listamaður, hugvitssamur og skáldmæltur. Pentað er eftir hann latínukvæði, Charis Islandica, í Kaupmanna-höfn 1776, enn fremur latnesk þýðing passíusálma séra Hallgríms Péturssonar (Psalmi Passionales), Kaupmannahöfn 1778, Gilsbakkaþula, prentuð í Huld V."
Kona: Arndís, d. 1814, 82 ára, dóttir Jóns prests á Gilsbakka Jónssonar.
Meðal barna þeirra var Jón eldri, kaupmaður í Stykkishólmi ,,auðmaður sem kenndi nokkrum nemöndum undir skóla", þ.e. þreyttu stúdentspróf síðar. Kona hans var Ragnheiður Jónsdóttir, prests Holti, Önundarfirði, föðursystir sr. Friðriks Eggerz, og fær Jón kaupmaður hin bestu ummæli hjá sr. Friðriki í ævisögu hans ,,Úr fylgsnum fyrri aldar", en það fengu samt ekki allir nánir nema síður væri.
Guðrún eldri Kolbeinsdóttir átti að 2. manni Eirík dannebrogs-mann Vigfússon að Reykjum á Skeiðum, sem Reykjaætt er frá komin. Eru algeng í þeirri ætt nöfnin Kolbeinn, Þorsteinn og Eiríkur.
Sagðist Jón Ingi Sigurmundsson, kórstjóri á Selfossi, f. 1934, geta sparað sér það ómak að tónheyrnarprófa fólk af Reykjaætt ef syngja vildi í hans kór.

Myndir