Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1731
1731
1731

Allt nú þykir ósiður

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

AAllt nú þykir ósiðursem áður prýddi vitrapíetisminn plagsiðurpredikaður ytralokað Kóngsins Teatertigna skal hið bitralúskra ber á Lúsíferleyfist ekkert glitra.

Glúmur Gylfason · 1731

Heimildir og samhengi

Annálar segja Christian VI. hylltan á óheppilegum árstíma, 12/9 - menn nýkomnir heim til sín af þingi.
Athöfnin þótti snubbótt, engar veitingar á Þingvöllum. ,,Mannfjöldi sá mesti sem verið hafði á Þingvöllum í 200 ár", segir í Dögum Íslands, e.t.v. vegna þess hve vel var veitt við síðustu hyllingu, árið 1700. Nýi kóngurinn, Kristján 6., átti þýska konu, sem var píetisti eins og þá var í tísku með þýskum sem Danir drógu dám af á þessum tíma sem oftar. Var þá lokað því Konunglega og öðrum leikhúsum og ber að taka það bókstaflega að allt er glóði á, t.d. glitvefnaður, var útlægt gert á ríkisárum Chr. VI., d. 1746, og ekki unnið að útgáfu fornra veraldlegra rita í Danaveldi.
Boðberi píetismans í Danaveldi var Erik Pontoppidan, höfundur fermingarkvers, Ponta, sem m.a. sr. Halldór Brynjólfsson þýddi til þess að fá betri byr frá Harboe til biskupsembættis.

Meinlætalifnaður var stundaður í Stóu og skaut upp kollinum hjá kristnum með Origenes frá Alexandríu, d. ~ 245, sem var a.m.k. einn þeirra fyrstu kristnu sem tók upp meinlæta- og einsetulifnað.
Írskt einsetufólk settist að á afskekktum eyjum frá um 600. Með hömlum á hvatir og tilfinningar hugðust þeir tryggja farsæld sína í öðru lífi. Fyrsti munkurinn er talinn Egyptinn St. Antonius, d. 356.
Sjá Der Spigel Gesichte 6, 2017, bls. 44-50, og 96-100.
Þar má og lesa, að:
heittrúarstefnan, Píetisminn, lét trúna spretta af tilfinningum einstaklingsins, en fyrr, í rétttrúnaðinum, gilti í evrópu ,,cuius regio, eius religio” þá skyldu borgarar skv. því játa sömu trú og valdhafinn.
Píetisminn á upptök í þýsku mótmælendaríkjunum eftir hörmungar 30ára stríðsins, þegar trúariðkun hafði lengi þokað fyrir hernaðarhryllingnum.
Píetistar sinntu líknarmálum, einkum munaðarlausum börnum sem nóg var af eftir 30 ára stríðið, og héldu stofnanir fyrir þau, Waisenhaus, sbr. erfðaskrá píetistans Jóns Thorchilius.
Aðrir íslenskir píetistar voru einkum sr. Þorsteinn Pétursson á Staðarbakka (1710-1785) sjá 1757, Jón biskup Árnason (1722) og sr. Jón lærði Jónsson á Núpufelli (1759-1846) sjá 1822.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Á þriðja fjórðungi 18. aldar bærði skynsemisstefnan á sér með þýskum. Þar rýmdu tilfinningarnar – og jafnvel djöfullinn - fyrir gagnrýnni hugsun og tekur land hér með þeim Hannesi Finnssyni biskupi (1739-1796) og Magnúsi Stephensen (1762-1833).
Þar skyldi skynsemin ráða ferðinni í trú – og réttarfari.

Í Gullhreppum, bls. 105, lætur Bjarni Harðarson séra Þórð í Reykjadal (1730, 1762) segja að píetismanum sé mest í mun að gelda allan heiminn og afhrópa gleðina yfir sköpunarverki Guðs.

Myndir

Einnig frá árinu 1731

  • Jón M. er millum meyja glaður
  • Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kann
← 1731Jón M. er millum meyja glaður1731 →Ymislegt fyrir sér Kolbeinn kann