Siglufjarðar sköpum skjótt

Siglufjarðar sköpum skjóttskipti að norskir kunnu.Síldin varð að silfri fljóttsöltuð oní tunnu.

Glúmur Gylfason · 1904

Heimildir og samhengi

Björn Dúason telur á bls. 83 í Síldarævintýrinu á Siglufirði, útg. 1988, að Norðmenn hafi byrjað hringnótaveiðar 26. júí 1904 (í stað rekneta) og þar með hafi síldarævintýrið byrjað fyrir alvöru, þ.,e., ári eftir að síldin synti inn á Siglufjörð en var þá veidd í reknet, sem voru miklu afkastaminni.
Þar með hafi bæði kyn fengið vinnu sem greidd var í peningum út í hönd, sem var fátítt.
Bls. 87: ,,Fregnin um hina gífurlegu uppgripavinnu flaug landshorna milli og fólkið streymdi til Siglufjarðar sem varð á hvers manns vörum".

Frá bls. 106 segir frá því, að á árunum 1903 til 1912 mætti kalla að Norðmenn réðu öllu á Siglufirði um síldveiðar og söltun. Kom þá ár hvert 50 til 60 manna hópur norskra kvenna og karla til að vinna að söltuninni, þar af 15 til 20 stúlkur. Allar söltunarstöðvarnar höfðu þaulæfða norska beykja til að loka tunnunum og svigbenda þær.

Kristinn Halldórsson, Þættir úr sögu Siglufjarðar, bls. 497-8: ,,Í norskum blöðum var Siglufirði lýst sem ,,fiskernes eldorado" og frásagnir af drykkjulátum og ryskingum voru í flestum tilfellum sannorðar".

Um síldina, sjá enn fremur 1903.

Myndir